Handbolti

Ætla að gera KA-húsið svart í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Auglýsing fyrir leikinn.
Auglýsing fyrir leikinn. Mynd/http://www.ka.is/
Það má búast við troðfullu húsi og æsispennandi leik í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld þegar nýliðarnir mætast í KA-húsinu á Akureyri.

Lið Akureyrar og KA komu bæði upp úr Grill 66 deild karla síðasta vor og mætast í fyrsta leik sínum í efstu deild í vetur.

Leikurinn hefst klukkan 19.00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

KA-menn hafa ráðlagt fólki að kaupa miða í forsölu því annars gætu verið engir miðar í boði. „Í fyrra var uppselt og þurftum við að vísa fólki frá,“ segir í Twitter-færslu KA-manna.  Síðustu fréttir frá Akureyri eru að það séu örfáir miðar eftir.





Akureyringar ætla að fjölmenna í KA-húsið og munu reyna að kæfa gula litinn hjá KA-mönnum ef marka má Twitter-reikning Handboltafélags Akureyrar.

„Gerum KA-húsið svart og styðjum okkar menn til sigurs,“ segir í færslu þeirra sem má sjá hér fyrir neðan.





Þetta er í fyrsta sinn sem KA og Akureyri mætast í efstu deild karla í handbolta og jafnframt fyrsti Akureyrarslagurinn í efstu deild karla síðan 16. desember 2005. Þá unnu KA-menn eins marks sigur, 26-25, í Höllinni á Akureyri.

Veturinn eftir voru KA og Þór komin í samstarf undir merkjum Handboltafélags Akureyrar en vorið 2017 slitnaði upp úr samstarfi Þórs og KA um Akureyri Handboltafélag og stofnuðu KA-menn sitt eigið lið á meðan Þórsarar héldu áfram að spila undir merkjum Akureyrar.

Akureyri er með upphitun fyrir leikinn á heimasíðu sinni og þar kemur fram að það eru miklar tengingar á milli liðanna.

„Til að mynda er fyrirliði KA-manna, Andri Snær Stefánsson, leikjahæsti leikmaður í sögu Akureyrar Handboltafélags. Í leikmannahópi KA má finna fleiri goðsagnir úr sögu AHF og ber þar helsta að nefna gömlu brýnin Heimi Örn Árnason og Hrein Þór Hauksson,“ segir í fréttinni.

Þegar liðin mættust á sama stað í upphafi síðustu leiktíðar í Grill 66 deild karla vann KA 10-0 sigur eftir að leikurinn hafði endað með 19-19 jafntefli. Í síðari leik liðanna vann Akureyri fjögurra marka sigur, 24-20, fyrir framan meira en 1100 áhorfendur í Íþróttahöllinni.

KA-menn auglýsa líka leikinn á heimasíðu sinni og kalla leikinn „baráttuna um bæinn“ en það má lesa upphitun þeirra með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×