Viðskipti innlent

Fjárfest í flughermum fyrir fjóra milljarða

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Icelandair hefur fjárfest í flughermum fyrir tæpa fjóra milljarða og innan mánaðar getur öll þjálfun og kennsla, á allan flugflota félagsins, átt sér stað hér heima. Eftirspurn erlendra flugfélaga um æfingatíma í herminum stendur undir fjárfestingunni.

Flugfélagið hefur markvisst byggt upp æfingaaðstöðu fyrir flugmenn og hefur annar hermir þegar verið settur upp en hann er fyrir Boeing 737 MAX vélar félagsins sem nýlega voru teknar til þjónustu. Framkvæmdastjóri æfingsetursins segir að með því að halda æfingaaðstöðinni hér heima sparast miklar fjárhæðir.

„Þegar við byrjuðum með 757 flugherminn kom það svo vel út í þjálfun, bæði kostnaðarlega og í gæðum. Þegar ákveðið var að kaupa 737 MAX vélarnar þá ákváðum við að fá hermi fyrir þær líka, “ segir Guðmundur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri hjá Icelandair

Kostnaður fyrir hvern og einn flughermi er um 1,3 milljarður og tekur um ár í uppsetningu. Nýting á æfingatímum verið með besta móti eða um tuttugu tímar á dag, 360 daga á ári. Þar af eru 30 prósent af tímunum nýttir af erlendum flugfélögum sem skapar tekjur fyrir flugfélagið.

„Það stendur alveg undir þessari fjárfestingu,“ segir Guðmundur Örn.

Guðmundur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri hjá IcelandairVísir
Einungis Fimm 737 MAX flughermar eru til í heiminum og er þessi sá einu sem ekki er í eigu Boeing flugvélaframleiðandans. Icelandair fær sex nýjar 737MAX vélar á næsta ári og ráðgert er að í vetur verði um 600 flugmenn í starfi hjá félaginu. Öll þjálfun þeirra mun eiga sér stað hér á landi.

Gæði, eiginleikar og tækni flughermisins er þannig að hægt er að líkja eftir eins raunverulegum aðstæðum og hægt er eins og fréttamaður fékk að kynnast.

Hversu nálægt raunveruleikanum eru þessar hermar miðað við það sem þið eruð að gera?

„Þetta er mjög nálægt því. Allavega gleyma menn sér í þessu og manni finnst maður vera að berjast upp á líf eða dauða þegar maður lendir í havaríi. Það er hægt að sýna og prófa ýmislegt sem maður vonar að maður þurfi aldrei að prófa,“ segir Franz Ploder, flugstjóri hjá Icelandair.

Heildarfjárfestingin í flughermum nemur fjórum milljörðum þegar sá þriðji í röðinni, fyrir stærstu vélar félagsins Boeing 767, verður tekinn í notkun innan mánaðar.


Tengdar fréttir

Eins milljarða flughermir tekinn í notkun

Rúmlega eins milljarða króna flughermir, sem búin er fullkominni tækni til að þjálfa flugmenn, var tekin í notkun við hátíðlega athöfn í Hafnarfirði í dag. Líklegt er að erlendir atvinnuflugmenn komi hingað til lands í reglubundna þjálfun í herminum.

Erlend félög sækja í nýja flugherminn

Umframeftirspurn eftir tímum í nýja flugherminn í Hafnarfirði. Félög á borð við Fedex og DHL á meðal viðskiptavina. Meiri eftirspurn á veturna en sumrin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×