Innlent

„Bestu stundirnar eru á trésmíðaverkstæðinu“ segir 93 ára Hvergerðingur

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Guðmundur Einarsson, 93 ára við nýja skápinn sinn sem hann á eftir að fylla af verkfærum.
Guðmundur Einarsson, 93 ára við nýja skápinn sinn sem hann á eftir að fylla af verkfærum. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Mikil ánægja á meðal heimilismanna á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði, ekki síst hjá körlunum, því þar var verið að opna endurbætt trésmíðaverkstæði þar sem allar vélar eru splunkunýjar. Guðmundur Einarsson, alltaf kallaður Gúndi, segir gott að vera gamall í Hveragerði en hann er 93 ára.

Nýlega var haldið upp á það að búið væri að laga húsnæði verkstæðisins og kaupa nýjar vélar inn í það. Á verkstæðinu hafa menn sinnt áhugamálum sínum og mörg listaverkin orðið til. Verkstæðið hefur gefið „heldri“ mönnum á Ási tækifæri á að viðhalda sinni færni og vera félagslega virkir. Hingað til eru það aðallega karlmenn sem hafa nýtt sér aðstöðuna.

Fanney Björg Karlsdóttir iðjuþjálfi á Ási segir að karlar og konur á Ási séu velkomin á nýja verkstæðið, það standi öllu heimililsfólki opið alla daga vikunnar.Vísir/Magnús Hlynur hreiðarsson
„Hér var til skamms tíma lítið trésmíðaverkstæði sem var mikið notað fyrir aðallega karla, eða „heldri“ menn. Okkur fannst komin tími til að stækka aðstöðun og bæta hana aðeins og gera þá líka aðstöðu fyrir annars konar starfsemi aðallega fyrir karla en að sjálfsögðu eru konur velkomnar,“ segir Fanney Björg Karlsdóttir iðjuþjálfi á Ási.

Á verkstæðinu eru flottustu tæki til trésmíðavinnu og góð aðstaða fyrir heimilismenn sem eru duglegir að skera út og tálga svo dæmi sé tekið.

Mjög fallegir munir eru búnir til á nýja verkstæðinu hjá Ási í Hveragerði.Vísir/Magnús hlynur hreiðarsson
Guðmundur segir sínar bestu stundir á trésmíðaverkstæðinu þar sem hann tekst á við fjölbreytt verkefni.

„Þetta er bara alveg yndislegt og sjá hvað það er búið að gera fyrir verkstæðið okkar, það er gjörsamlega búið að umbylta því.  Allar vélar eru nýjarpg borðin og skápar fyrir mannskapinn til að geyma verkfærin sín í. Það sem gert er hér fyrir fólkið á Ási er með ólíkindum, það trúir því bara varla nokkur maður“, segir Guðmundur alsæll með nýju aðstöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×