Fótbolti

Sjáðu Maradona taka Víkingaklappið í Mexíkó: "Ég var veikur í fjórtán ár“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Maradona.
Diego Maradona. Vísir/Getty
Diego Maradona er tekinn við liði Dorados de Sinaloa frá Mexíkó og ætlar þar að reyna að endurbyggja þjálfaraferill sinn.

Maradona er orðinn 57 ára gamall og hefur gengið í gegnum ýmislegt á ævinni. Baráttan við eiturlyfjafíknina hefur sett mikinn svip á hans líf og margir hafa því áhyggjur að sjá hann kominn til Mexíkó. Ekki síst þar sem hann er kominn til Culiacan þar sem Sinaloa-eiturlyfjahringurinn ræður ríkjum. Það var eiturlyfjabaróninn El Chapo Guzman sem stofnaði þau samtök og hann bjó í Culiacan.

Maradona ræddi fíkn sína og framhaldið þegar hann hitti blaðamenn í tilefni af ráðningunni. Hann segist nú tilbúinn í heilbrigðara líferni.

„Ég vil gefa Dorados það sem ég týndi þegar ég var veikur,“ sagði Diego Maradona sem er kominn á sömu slóðir og hann leiddi Argentínu til heimsmeistaratitils sumarið 1986 með stórkostlegri frammistöðu inn á vellinum.





„Ég var veikur í fjórtán ár. Nú vil ég sjá sólina og fara að sofa á kvöldin. Ég var ekki einu sinni vanur því að leggjast í rúmið. Ég vissi ekki hvað koddi var. Þess vegna tók ég tilboðinu frá Dorados,“ sagði Maradona.

Maradona hefur reynt fyrir sér sem þjálfari hjá argentínska landsliðinu, og arabísku félögunum Al Wasl og Fujairah.

Maradona var boðinn velkominn hjá Dorados de Sinaloa í gær og þar þakkaði hann fyrir móttökurnar með því að taka Víkingaklappið með leikmönnum og stuðningsmönnum. Það má sjá það hér fyrir neðan.





Maradona mætti á HM í Rússlandi í sumar og sá meðal annars leik Íslands og Argentínu. Hann virðist hafa lært Víkingaklappið í leiðinni.

Hann var búinn að taka að sér starf stjórnarformanns hjá Dinamo Brest í Hvíta Rússlandi fyrr á þessu áru en ekki er vitað hvað þessu ráðning, til liðs hinum megin á hnettinum, muni enda það ævintýri.

 

„Ég vil vera lengi hjá Dorados,“ sagði Maradona sem lofar endurbótum á sínu lífi.

„Fólk getur sagt margt um mig. Ég var á niðurleið og var fara illa með mig. Það var skref aftur á bak en fótboltinn er skref fram á við. Allt er breytt hjá mér og ég þakka dætrum mínum fyrir það,“ sagði Maradona.

Það var vel tekið á móti kappanum eins og sést hér fyrir neðan.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×