Lífið

Stórkostlegt lofttrommusóló stal senunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Öflugur stuðningsmaður Ravens í NFL-deildinni.
Öflugur stuðningsmaður Ravens í NFL-deildinni.
Einn grjótharður stuðningsmaður Baltimore Ravens stal heldur betur senunni uppi í stúku á leik Ravens og Buffalo Bills í NFL-deildinni.

Ravens vann leikinn mjög örugglega 47-3 og var umræddur maður eðlilega mjög sáttur við úrslitin.

Kappinn var myndaður uppi í stúku að taka rosalegt lofttrommusóló við lagið Tom Sawyer með sveitinni Rush.

Myndbandið hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum og má sjá það hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×