Fótbolti

Courtois: Skemmtilegt að heyra víkingaklappið

Smári Jökull Jónsson á Laugardalsvelli skrifar
Thibaut Courtois átti náðugan dag í marki Belga í kvöld.
Thibaut Courtois átti náðugan dag í marki Belga í kvöld.
Thibaut Courtois markvörður Belga hafði fremur lítið að gera í leiknum gegn Íslandi í dag og þurfti aðeins einu sinni að taka á hinum stóra sínum þegar hann varði skot frá Gylfa Þór Sigurðssyni í síðari hálfleiknum.

„Mér fannst þetta góður leikur og Ísland spilaði vel fyrstu 15 mínúturnar og voru nálægt því að skora. Þeir áttu hættulegar aukaspyrnur og hornspyrnur en svo skoruðum við úr vítinu og annað mark strax í kjölfarið. Við erum lið sem getur haldið boltanum vel og við gerðum það,“ sagði Courtois í samtali við Vísi eftir leikinn í kvöld.

Markvörðurinn öflugi, sem leikur með Real Madrid, sagði belgíska liðið hafa undirbúið sig sérstaklega fyrir föst leikatriði Íslands.

„Við vissum að við þyrftum að vera sterkir þar. Við náðum að hreinsa frá þegar þeir áttu löng innköst og ég náði að grípa inní einnig. Mér fannst við verjast mjög vel og þar sem Íslands skorar oft úr föstum leikatriðum hljótum við að vera ánægðir að hafa náð að verjast þeim.“

Courtois sagðist hafa verið hissa þegar hann heyrði af 6-0 tapi Íslands gegn Sviss á laugardag.

„Þeir voru eflaust óheppnir þar. Það var fyrsti leikur eftir Heimsmeistaramótið og það er oft erfitt. Við vissum að þeir myndu vilja sýna að það hefðu ekki verið rétt úrslit og ekki í þeirra anda. Við sýndum mikinn þroska og vorum einbeittir á að gera vel.“

Courtois sagði að það hefði verið gaman að heyra víkingaklappið á Laugardalsvellinum og var ánægður með stemmninguna í kvöld.

„Þeir tóku víkingaklappið sem var skemmtilegt og okkar stuðningsmenn tóku undir. Þetta er ekki stærsti leikvangurinn en ef það er góð stemmning þá skiptir ekki máli þó það séu ekki nema 10.000 áhorfendur. Það er skemmtilegra að spila á litlum velli með góða stemmningu en á stórum velli sem er hálftómur. Þetta var skemmtilegur leikur og við erum afar ánægðir,“ sagði Thibaut Courtois að lokum.


Tengdar fréttir

Umfjöllun: Ísland - Belgía 0-3 │ Belgar felldu vígið í Laugardalnum

Ísland tapaði í kvöld sínum fyrsta leik á Laugardalsvelli í fimm ár í kvöld er stórkostlegt lið Belga vann sannfærandi 3-0 sigur. Liðið er því án stiga og með markatöluna 0-9 eftir tvo leiki í Þjóðadeildinni. Engin draumabyrjun á landsliðsþjálfaraferli Erik Hamrén.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×