Golf

Stórglæsileg umfjöllun um Ólafíu á CNN: „Ég vil verða Federer kvennagolfsins“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á LPGA-atvinnukvennamótaröðinni í golfi þrátt fyrir að hafa ekki alveg náð að fylgja á eftir frábæru fyrsta tímabili.

Frammistaða og saga Ólafíu Þórunnar fór ekki framhjá fólkinu á CNN sem fékk hana í viðtal og hafa nú birt stórglæsilega umfjöllun um íslenska kylfinginn. CNN setur spilamennsku Ólafar einnig í samhengi við uppkomu íslenska golfsins á alþjóðlegum vettvangi.





Umfjöllunin byrjar á því að benda á það að hraunin í kringum golfvellina á Íslandi gefi kylfingum auka ástæðu til að hitta á brautirnar en þar er líka talað um að sumir golfvellirnir séu inn í gömlum eldfjöllum og á sumum völlum þurfi íslenskir kylfingar að slá yfir sjó til að komast inn á flöt.

„Ég held að við Íslendingar séum svo svellkaldir að trúa því að allt sé mögulegt,“ sagði Ólafía Þórunn meðal annars í viðtalinu.

Ólafía Þórunn hefur lengi lýst yfir aðdáun sinni á svissneska tennisgoðsögninni Roger Federer og blaðamaður CNN segir hana vera svo fulla sjálfstrausts að hún tali um það að vilja verða Federer kvennagolfsins.





Í greininni er einnig talað um afrek Haralds Franklín Magnús að komast inn á Opna breska meistaramótið í golfi og að Valdís Þóra Jónsdóttir sé líka að minna á sig í hópi bestu kylfinga heims.

Ólafía Þórunn segist hafa bætt sig mikið með að spila golf með háskólanámi sínu í Bandaríkjunum. „Ég var góður kylfingur en ekkert undrabarn þegar ég var krakki,“ sagði Ólafía.

„Ég bætti mig mikið í háskóla og þá hugsaði ég: Ég á möguleika. Draumurinn var orðinn nær raunveruleikanum og ég lét bara vaða. Það var besta sem ég hef gert,“ sagði Ólafía Þórunn.

Greinin fjallar einnig um kjálkaaðgerð Ólafíu og frábæran árangur hennar árið 2017.

„Ég lærði rosalega mikið af þessu ári. Ég les mikið af bókum um andlegu hliðina í golfinu og þekki sjálfan mig mun betur núna. Ég veit núna hvað virkar fyrir mig og hvað virkar ekki. Ég tel mig líka æfa betur núna það er næ meira út úr æfingunum. Hér áður fyrr vissi ég eiginlega ekki alveg hvað ég var að gera,“ segir Ólafía.

Það má lesa allt viðtalið og umfjöllunina með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×