Fótbolti

Del Piero: Enginn þjálfari mikilvægari en Cristiano Ronaldo

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Vísir/Getty
Juventus goðsögn segir að áhrifin frá Cristiano Ronaldo á Juventus liðið séu mun meiri en frá nokkrum þjálfara og líkur honum við LeBron James í NBA.

Cristiano Ronaldo er þekktur fyrir að geta útslagið inn á vellinum með snilli sinni og markaskorun en áhrifin eru meiri en inn á vellinum.

Alessandro Del Piero er ein af stærstu hetjunum í sögu Juventus en hann vinnur nú sem fótboltaspekingur hjá Sky Sport Italia. Del Piero hefur tjáð sig um komu Cristiano Ronaldo til hans gamla félags.





„Að mínu meti er enginn þjálfari mikilvægari en CR7. Hann er magnaður sigurvegari og hefur hugarfar sem aðeins íþróttafólk í sérflokki býr yfir,“ sagði Alessandro Del Piero í viðtali við Gazzetta dello Sport.

Alessandro Del Piero líkir Cristiano Ronaldo við NBA-körfuboltamanninn LeBron James. James hefur breytt örlögum liða í NBA með því að yfirgefa þau eða koma til þeirra. Enn eitt dæmið um það verður koma hans til Los Angeles Lakers í sumar.

En hversu gott er lið Juventus með Cristiano Ronaldo.

„Þetta lið í dag er án vafa eitt það allra besta í Evrópu. Það eru fleiri um hituna en þetta Juventus lið á skilið að ná mjög langt,“ sagði Del Piero.

Það kom Del Piero á óvært þegar Juventus tókst að fá Cristiano Ronaldo til sín í sumar.

„Ég trúði því ekki þegar ég heyrði þetta fyrst. Ég hélt að þetta væri gabb,“ sagði Alessandro Del Piero.

Hvernig lítur tímabilið í Meisataradeildinni út að mati Alessandro Del Piero?

„Real Madrid hefur unnið þrjá titla í röð og er ennþá sigurstranglegasta liðið þrátt fyrir að hafa misst Ronaldo. Í anarri röð eru lið eins og Juve, Manchester City og PSG. Í þriðju röðinni koma svo Barcelona, Bayern og Liverpool,“ segir Del Piero en er Juve liðið í dag eitt það besta hjá félaginu í sögunni.

„Það er erfitt að bera saman fótboltalið frá mismunandi tíma en ég tel samt ekki að þetta lið sé búið að ná Lippi-liði Juventus. Við komust þá í fjóra úrslitaleiki í Evrópukeppni á fjórum árum. Ég er ennþá svekktur yfir því að hafa aðeins unnið einn þeirra,“ sagði Del Piero.

Fyrir þá sem skilja ítölsku má sjá viðtalið við Alessandro Del Piero hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×