Matur

Sjáðu hvernig Eva Laufey gerir geggjaðar mozzarellafylltar kjötbollur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eva Laufey getur sannarlega eldað girnilegar kjötbollur.
Eva Laufey getur sannarlega eldað girnilegar kjötbollur.

Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.

Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Hér að neðan má sjá uppskrift úr þætti gærkvöldsins. Þar sýndi Eva hvernig hægt sé að reiða fram ítalskar kjötbollur með mozzarella fyllingu.

Ítalskar kjötbollur með mozzarella fyllingu í æðislegri tómat – og basilíkusósu

 Upp­skrift:

  • 500 g nautahakk
  • 1 stórt egg
  • 3 hvít­lauks­geir­ar, saxaðir
  • ½ laukur
  • 1 msk smátt söxuð basilíka
  • 1 msk smátt söxuð steinselja
  • 2 msk hveiti
  • 14 -16 litlar mozzarella kúlur
  • 2 msk. ólífu­olía
  • 400 g spaghetti
  • Nýrifinn parmesan, magn eftir smekk
  • Tómat- og basilíkusósa, uppskrift hér að neðan

Aðferð:

  1. Blandið nauta­hakki, eggi, smátt söxuðum lauk, nýrifnum hvítlauksgeirum, smátt saxaðri steinselju, basilíku og hveiti saman í skál. Kryddið til með salti og pipar. Notið hendurnar til þess að þjappa deiginu vel saman.
  2. Mótið litlar kúlur, fletjið þær örlítið út og setjið litla mozzarellakúlu fyrir miðju og þjappið deiginu utan um ostinn.
  3. Steikið kjötbollurnar upp úr olíu þar til þær eru stökkar á öllum hliðum.
  4. Útbúið sósuna og sjóðið spaghettí samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
  5. Berið bollurnar fram með æðislegri tómat- og basilíkusósu, spaghettí og nýrifnum parmesan.

Tómat- og basilsósa

  • 1 laukur, smátt skorinn
  • 2 hvítlauksrif, marin
  • 500 ml hakkaðir tómatar
  • 1/2 kjúklingateningur
  • 1 msk.fersk steinselja, smátt söxuð
  • 1 msk. fersk basilíka, smátt söxuð
  • Salt og pipar, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Hitið olíu við vægan hita í potti, steikið lauk og hvítlauk í olíunni í 1 – 2 mínútur eða þar til laukarnir eru mjúkir í gegn.
  2. Bætið öllu hinu í pottinn og leyfið sósunni að malla í örfáar mínútur.

    Hér að neða má sjá hvernig maður gerir réttinn. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×