Fótbolti

Spánverjarnir hringdu auðvitað í Saul

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Saul Niguez.
Saul Niguez. Vísir/Getty
Margir Spánverjar höfðu örugglega miklar áhyggjur af miðju spænska landsliðsins eftir að landsliðsskór Andres Iniesta og David Silva fóru upp á hillu í sumar. En ekki lengur.

Ný stjarna fæddist í fyrstu landsleikjunum eftir þessi kynslóðarskipti en þar er á ferðinni miðjumaður sem helsti sérfræðingur um spænska boltann, Guillem Balague, segir að muni verða næsta stórstjarna spænska fótboltans. BBC segir frá.

Heimsmeistarakeppnin í Rússlandi í sumar var mjög vandræðaleg fyrir spænska landsliðið, þar sem þjálfarinn var rekinn tveimur dögum fyrir fyrsta leik og liðið datt síðan út strax í sextán liða úrslitum.

Eftir HM tók Luis Enrique við þjálfun liðsins og Spánverjar unnu Englendinga á Wembley (2-1) og 6-0 stórsigur á silfurliði Króata í fyrstu tveimur leikjunum undir hans stjórn. 

Guillem Balague ræddi stöðuna á spænska landsliðinu í hlaðvarpi BBC Radio 5 live. Hann var mjög hrifinn af nýja manninum á miðju Spánverja sem er hinn 23 ára gamli Saul Niguez. 





Saul Niguez hefur leikið með aðalliði Atlético Madrid undanfarin fjögur tímabil en var aðeins búinn að spila 10 landsleiki fyrir leikina á móti Englandi og Króatíu.

Saul Niguez skoraði í þeim báðum, jafnaði fyrst metin í 2-1 sigri á Englandi og skoraði síðan fyrsta markið í stórsigrinum á Króötum. Þetta voru hans fyrstu landsliðsmörk.

Balague er á því að Saul Niguez geti orðið besti miðjumaður Evrópu. „Saul er með allt til þess að spila í þessu agressíva kerfi sem Dirego Simone er með hjá Atletico en hann er líka með hæfileikana fyrir Barcelona kerfið þar sem hann er með mjög góðar sendinga líka,“ sagði Guillem Balague.

„Við höfum aldrei átt svona miðjumann. Loksins er fólk búið að átti sig á því hversu hæfileikaríkur hann er,“ sagði Guillem Balague.

„Þegar hann var 18 ára gamall var Everton boðið hann en þeir sögðu nei. Þegar hann var 20 ára gamall þá gat Manchester United líka fengið hann en þeir sögðu líka nei takk. Ég held að á næstu árum verðum við að tala um hann sem einn af þeim bestu ef ekki besta miðjumann Evrópu,“ sagði Guillem Balague. 





„Hann getur spilað leikstíl Simeone án bolta og er fljótur að setja pressu á liðin. Hann er líka góður í leikstíl Barcelona ef hann þyrfti að spila þar enda öflugur í snöggum nákvæmum sendingum. Hann hefur líka hæfileikana til að koma með flott hlaup inn á teiginn eins og hann sýndi í markinu sínu á móti Króatíu. Við erum þarna með allt í einum leikmanni,“ sagði Balague. 

Allt gott tekur enda eins og Andres Iniesta hjá spænska landsliðinu og Walter White í Breaking Bad. Þá er alltaf best að hringja í Saul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×