Öflugur endurkomusigur Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Börsungar fagna marki í kvöld.
Börsungar fagna marki í kvöld. vísir/getty
Barcelona kom til baka gegn Real Sociedad á útivelli og vann 2-1 sigur. Liðið er því með fjóra sigra í fyrstu fjórum leikjunum.

Það leit ekki vel út fyrir Barcelona sem lenti undir strax á tólftu mínútu er Aritz Elustondo kom heimamönnum yfir. Þannig stóðu leikar í hálfleik.

Barcelona jafnaði á 63. mínútu en Úrúgvæinn Luis Suarez jafnaði þá og þrem mínútum síðar skoraði Frakkinn Ousmane Dembele sigurmarkið fyrir Barcelona.

Lokatölur öflugur útisigur Barcelona sem er með tólf stig eftir fjóra leiki á toppi deildarinnar en en Real getur jafnað þá að stigum með sigri á Athletic Bilbao í kvöld.

Sociedad er með fjögur stig eftir fjóra leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira