Madridingar sóttu eitt stig til Bilbao

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Iker Muniain
Iker Muniain vísir/getty
Real Madrid fataðist flugið í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Evrópumeistararnir heimsóttu Athletic Bilbao í fjórðu umferðinni en Real hafði unnið fyrstu þrjá leiki sína fram að leiknum í kvöld.

Iker Muniain kom heimamönnum yfir eftir rúmlega hálftíma leik og leiddu Bilbæingar í hálfleik.

Staðan var 1-0 allt þar til á 63.mínútu þegar Isco jafnaði metin fyrir Madringa og reyndust það úrslit leiksins.

Real Madrid missti því toppsætið í hendur Barcelona en Athletic Bilbao er einnig taplaust, þó eftir aðeins þrjá leiki og hafa Bilbæingar aðeins unnið einn en gert tvö jafntefli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira