Viðskipti innlent

Segir að sambærileg búð opni á Hallveigarstíg

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Degi B. Eggertssyni borgarstjóra brá við tíðindin af hvarfi Bónus af Hallveigarstíg.
Degi B. Eggertssyni borgarstjóra brá við tíðindin af hvarfi Bónus af Hallveigarstíg. Vísir/Vilhelm
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, segir að sambærileg verslun við Bónus verði rekin á Hallveigarstíg. Hagar þurfa að loka verslun Bónus á næstunni samkvæmt ákvæðum er tengjast samruna Haga og Olís.

Dagur segist ekki hafa upplýsingar um hvaða verslun hefji þar rekstur en þegar hafi verið gengið frá kaupsamningum. Í sátt Samkeppniseftirlitsins er gerð sú krafa að kaupendur að eignum Haga séu líklegir til að veita Högum beina samkeppni.

Dagur, sem býr í hverfinu, segist líkt og fleiri hafa rekið upp stór augu og klórað sér í kollinum yfir tíðindunum að verslun Bónus yrði lokað. Vísir greindi frá því að Hagar hefðu getað valið á milli þess að loka versluninni á Hallveigarstíg eða Laugavegi.

Úr varð að þeirri fyrrnefndu verður lokað, að líkindum í nóvember að sögn Dags.


Vonar að fólki sé rórra

í tilkynningu vegna samruna Olís og Haga segir að vonir standi til að hæfismati Samkeppniseftirlitsins ljúki í síðasta lagi um miðjan nóvember.

Borgarstjórinn segir ýmsa áhyggjufulla íbúa miðborgarinnar hafa haft samband og fólk sem styðji þá „góðu stefnu að hafa dagvöru í göngufæri í öllum hverfum“ lýst vonbrigðum sínum á ýmsum vettvangi.

„Vona ég að fleirum en mér sé heldur rórra, þó vissulega sé enn ákveðin óvissa um hvernig þetta verður endanlega.“

Tíðindin af lokun Bónus verslunarinnar komu um svipað leyti og Kjöt og fiskur, verslun með fyrrnefnda matvöru, tilkynnti að rekstri í Bergstaðarstræti yrði hætt.



Samkeppnishæfur aðili verður að hefja rekstur

Í sátt Samkeppniseftirlitsins er fjallað um kröfur til kaupenda seldra eigna, svo sem húsnæðinu við Hallveigarstíg. Þar segir að að tilgangurinn með sölu á dagvöruverslunum sé að eyða þeirri samkeppnisrökun sem leiði af samrunanum. Eignirnar eigi að sleja aðila sem sé líklegur til að veita Högum samkeppni. 

Kaupandinn þurfi að vera óháður Högum, líklegur til að geta veitt Högum samkeppni og búa yfir nægjanlegri þekking, fjárstyrk og hvata til þess að líklegt sé að hann geti veit samkeppnislegt aðhald til bæði skemmri og lengri tíma.

Nokkur umræða hefur skapast við þráð Dags og segist Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, meðal annars vona að arftaki Bónus við Hallveigarstíg verði ekki 10-11 verslun. Þá spyr Ingþór Eyþórsson að því hvort ekki sé hægt að huga að fleiri hverfum en miðbænum.

„Það er einmitt málið,“ segir Dagur. „Þetta er stefnan í öllum hverfum skv. aðalskipulagi Reykjavíkur.“

 




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×