Erlent

Sjö látnir vegna Flórens

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Búist er við því að vatnsyfirborð muni sum staðar ná einum metra.
Búist er við því að vatnsyfirborð muni sum staðar ná einum metra. Vísir/EPA
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að neyðarástand ríki í Norður Karólínuríki vegna hitabeltisstormsins Flórens sem gengur þar yfir. Sjö hafa látið lífið og varað er við því að það versta er ekki yfirstaðið enn þá. Öll sjö dauðsföllin hafa orðið í Norður Karólínufylki.

Stærstu vindhviður Flórens eru nú um 80 kílómetrar á klukkustund en þær voru um 150 kílómetrar á klukkustund í gærkvöldi. Milljónir húsa eru án rafmagns í Karólínufylkjunum.

Sumir bæir hafa fengið sinn skerf af vatnsflaumi og er búist við því að vatnsborðið muni sum staðar hækka upp í einn metra.


Tengdar fréttir

Flórens nú flokkuð sem hitabeltisstormur

Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir að fellibylurinn Flórens gekk yfir austurströnd Bandaríkjanna fyrr í dag. Yfir 600.000 heimili eru án rafmagns og byggingar hafa hrunið til grunna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×