Innlent

Stórskemmdi lögreglubíl með öxi í útkalli vegna heimilisófriðar

Kjartan Kjartansson skrifar
Ekki fengust frekari upplýsingar um heimilisófriðin sem lögreglan var upphaflega kölluð til að stöðva.
Ekki fengust frekari upplýsingar um heimilisófriðin sem lögreglan var upphaflega kölluð til að stöðva. Vísir/Vilhelm
Karlmaður lét högg dynja á lögreglubíl með öxi í Reykjanesbæ í dag þegar lögreglumenn brugðust við tilkynningu vegna heimilisófriðar. Bíllinn er ekki í nothæfu ástandi eftir atganginn en maðurinn er nú í haldi lögreglunnar.

Þegar lögreglumenn komu á vettvang kom maðurinn á móti þeim með öxi og hóf strax að höggva í lögreglubílinn. Töluverð átök þurfti til að yfirbuga manninn, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurnesjum. Engan sakaði þó í þeim átökum.

Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslur. Rannsókn á málinu er í gangi. Lögreglubifreiðin er sögð mikið skemmd að framan og ekki í nothæfu ástandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×