Erlent

Segja Ísraela hafa skotið eldflaugum að flugvellinum í Damaskus

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá loftárás yfir flugvellinum í Damaskus í apríl í fyrra sem Ísraelar voru einnig taldir hafa staðið fyrir.
Frá loftárás yfir flugvellinum í Damaskus í apríl í fyrra sem Ísraelar voru einnig taldir hafa staðið fyrir. Vísir/Getty
Sýrlenskir ríkisfjölmiðlar fullyrða að Ísraelsmenn hafi skotið eldflaugum á alþjóðaflugvöllinn í Damaskus í kvöld en sýrlenskar loftvarnir hafi náð að skjóta sumar þeirra niður. Sprengingarnar eru sagðar hafa ómað um höfuðborgina.

AP-fréttastofan hefur eftir Sýrlensku mannréttindavaktinni, samtökum sem fylgjast með stríðsrekstrinum í Sýrlandi, að árás Ísraela hafi beinst að vopnabúri fyrir íranskar hersveitir eða Hezbollah-samtökin.

Talið er að Ísraelar hafi áður staðið fyrir loftárásum á hópana tvo sem berjast með stjórnarher Bashars al-Assad forseta Sýrlands en þeir hafa sjaldan viðurkennt það. Stjórnvöld í Ísrael hafa þó sagst myndu grípa til hernaðaraðgerða til þess að stöðva vopnaflutninga til óvina sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×