Lífið

Söngelskur hundur Chris Evans vekur athygli

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Hundur leikarans Chris Evans þykir ekki leiðinlegt að syngja.
Hundur leikarans Chris Evans þykir ekki leiðinlegt að syngja. Vísir/Getty
Leikarinn Chris Evans, sem eflaust margir þekkja úr myndunum Avengers og Captain America, ættleiddi hund árið 2016. Hundurinn sem heitir Dodger er mjög söngelskur eins og sjá má á myndböndum sem leikarinn birti á Twitter reikningi sínum á dögunum.

Í öðru myndbandinu má sjá Dodger þar sem hann er með uppáhalds tuskudýrið sitt en ef að ýtt er á takka þá spilar það lag og Dodger tekur vel undir.

Í seinna myndbandinu má sjá að Dodger hefur fundið sér félaga í svokölluðum hundagarði sem er jafn söngelskur og hann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×