Innlent

Maðurinn fundinn heill á húfi

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Björgunarsveitir á Vesturlandi hafa verið kallaðar út.
Björgunarsveitir á Vesturlandi hafa verið kallaðar út. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir á Vesturlandi fengu útkallsboð á tíunda tímanum í kvöld. Efni útkallsins var að maður sem hafði verið við veiðar í Haukadal í Dölunum skilaði sér ekki á tiltekinn stað til þess að hitta félaga sína. Rétt eftir að fyrsta björgunarsveitsveit var farin úr húsi bárust svo fregnir um að heimamenn hefðu fundið manninn. Björgunarsveitin fór á staðinn engu að síður og staðfesti að þetta væri maðurinn sem ekki hafði skilað sér. 

Upplýsingafulltrúi Landsbjargar, Davíð Már Bjarnason, sagði að það var gott að ekki fór verr. Hann ítrekaði einnig að fólk ætti að biðja um aðstoða frekar fyrr en seinna í svona málum. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×