Fótbolti

Stjarnan Mjólkurbikarmeistari | Sjáðu vítaspyrnukeppnina

Smári Jökull Jónsson á Laugardalsvelli skrifar
Baldur Sigurðsson tekur við bikarnum frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Baldur Sigurðsson tekur við bikarnum frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. vísir/daníel
Stjarnan vann Breiðablik í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli í kvöld. Leikurinn var fínasta skemmtun og úrslit réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni.

Haraldur Björnsson reyndist hetja Stjörnunnar í vítakeppninni. Hann varði eina spyrnu frá Blikum auk þess sem ein spyrna þeirra grænklæddu fór yfir markið.

Þetta er fyrsti bikartitill Stjörnunnar í karlaflokki og ljóst að það verður fagnað í Garðabænum í kvöld.

Í spilaranum hér fyrir neðan er hægt að sjá vítaspyrnukeppnina í heild sinni.


Tengdar fréttir

Haraldur: Gleymdi að skoða vítaspyrnurnar þeirra

Haraldur Björnsson markmaður Stjörnunnar var eins og við mátti búast ánægður eftir sigur gegn Breiðablik í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í kvöld. Haraldur varði eina spyrnu Blika í vítaspyrnukeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×