Erlent

Minnst þrettán eru dánir en búist er við sögulegum flóðum

Samúel Karl Ólason skrifar
Sérfræðingar óttast að flóð í ám muni slá met og hefur þúsundum verið gert að yfirgefa heimili sín. Talið er mögulegt að skemmdirnar vegna Florence verði þær mestu í sögu Norður-Karólínu.

Rigningin hefur víða mæst rúmlega 60 sentímetrar og er búist við um 45 sentímetrum til viðbótar í dag.
Sérfræðingar óttast að flóð í ám muni slá met og hefur þúsundum verið gert að yfirgefa heimili sín. Talið er mögulegt að skemmdirnar vegna Florence verði þær mestu í sögu Norður-Karólínu. Rigningin hefur víða mæst rúmlega 60 sentímetrar og er búist við um 45 sentímetrum til viðbótar í dag. Vísir/AP
Yfirvöld Norður-Karólínu í Bandaríkjanna hafa beðið íbúa um að vera enn á varðbergi vegna óveðursins Florence. Þrátt fyrir að vindurinn hafi ekki verið jafn öflugur og óttast var er talið að söguleg flóð muni fylgja Florence á næstu dögum. Florence náði landi á föstudaginn og minnst þrettán eru látnir.

Þegar Florence náði landi urðu mikil flóð með strandlengju Norður-Karólína en farið að flæða inn með landinu. Ár flæða yfir bakka sína og skyndiflóð hafa orðið víða. Þá er talið að ástandið muni versna í báðum Karólínuríkjunum á næstu dögum vegna þeirrar gífurlegu rigningu sem fylgt hefur Florence.

Sérfræðingar óttast að flóð í ám muni slá met og hefur þúsundum verið gert að yfirgefa heimili sín. Talið er mögulegt að skemmdirnar vegna Florence verði þær mestu í sögu Norður-Karólínu.



Rigningin hefur víða mæst rúmlega 60 sentímetrar og er búist við um 45 sentímetrum til viðbótar í dag.

Samkvæmt CNN er talið að flóðin mun iekki ná hámarki fyrr en eftir þrjá til fimm daga. Ökumenn hafa verið beðnir um að sneiða alfarið fram hjá Norður-Karólínu af ótta við að margir þeirra muni sitja fastir á vegum ríkisins vegna flóða.



Sömuleiðis stafar mikil ógn af aurskriðum og þá sérstaklega fjalllendu svæði í vesturhluta Norður-Karólínu og í Virgníu.

 


Tengdar fréttir

Spá margra daga eymd vegna Florence

Stormurinn gengur á land í Bandaríkjunum í dag. Vindhraði hefur minnkað en umfang stormsins margfaldast. Mesta hættan stafar af úrkomu en flóðvatn gæti náð fjögurra metra dýpi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×