Handbolti

Tandri og Björgvin Páll sóttu sigur til Slóveníu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson.
Björgvin Páll Gústavsson. vísir/getty
Íslensku landsliðsmennirnir Tandri Már Konráðsson og Björgvin Páll Gústavsson stóðu í stórræðum með liði sínu, Skjern, þegar liðið heimsótti Celje Lasko í Meistaradeild Evrópu í handbolta.

Björgvin Páll stóð á milli stanganna allan leikinn og var með 32% markvörslu.

Tandri Már komst ekki á blað en Skjern vann sætan eins marks sigur, 26-27 eftir að staðan í leikhléi var 13-15, Skjern í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×