Lífið

Þú getur búið í gömlu pósthúsi í Mosó

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hús með mikla sögu í Mosfellsbænum.
Hús með mikla sögu í Mosfellsbænum.
Nú má fjárfesta  í íbúð í gamla pósthúsinu í Mosfellsbæ en um er að ræða um 100 fermetra þriggja herbergja íbúð við Háholt 4.

Um árabil hýsti þetta hús pósthúsið í Mosfellsbæ en hefur verið íbúðarhús undanfarin ár.

Húsnæðið er nú fjölbýlishús og er ásett verð á umrædda íbúð 36,5 milljónir og er fasteignamatið 30 milljónir. Húsið var byggt árið 1978.

Alls eru tvö svefnherbergi í íbúðinni en hér að neðan má sjá myndir af húsinu og íbúðunni.

Smekklegt hús með sögu.
Björt og fín setustofa.
Fínasta eldhús í íbúðinni.
Borðstofan opin og góð.
Mjög rúmgott hjónaherbergi.
Fínasta barnaherbergi.
Baðherbergið flísalagt í hólf og gólf.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×