Enski boltinn

Kante spilaði FIFA og horfði á sjónvarpið með aðdáendum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hinn auðmjúki Kante stillti sér upp í myndatökur með aðdáendunum.
Hinn auðmjúki Kante stillti sér upp í myndatökur með aðdáendunum. twitter
Það er óhætt að segja að hrokinn leki ekki beint af heimsmeistaranum og miðjumanni Chelsea, N'Golo Kante.

Hann missti af lest í vikunni og ákvað í kjölfarið að finna Mosku. Þar hitti hann aðdáanda sinn sem ákvað að bjóða Kante með heim til sín eftir leikinn. Sá átti ekki endilega von á jákvæðu svari og var því heldur betur hissa er Kante var meira en til í það.

Þar spiluðu Kante FIFA-tölvuleikinn með aðdáandanum og vinum hans. Þeir horfðu svo saman á Match of the day þar sem Kante kom eðlilega við sögu.





Aðdáandinn er reyndar stuðningsmaður Arsenal en mikill aðdáandi Kante. Hann bauð Kante upp á mat og það var kjúklingur í karrý.

„Hann sagðist hvort eð er bara ætla heim þannig að hann var til í að koma með okkur. Hann fékk sér kjúkling og svo te með okkur,“ sagði aðdáandinn, Badlur Rahman Jalil.

„Hann pakkaði okkur saman í FIFA áður en við horfðum á Match of the day. Þetta var virkilega skemmtileg kvöldstund.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×