Enski boltinn

Pochettino: Harry er auðvelt skotmark

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er smá pressa á Kane.
Það er smá pressa á Kane. vísir/getty
Mauricio Pochettino, stjóri Spurs, er ekkert allt of ánægður með þá gagnrýni sem Harry Kane fær á sig en hún kemur honum heldur ekki á óvart.

Hinn 25 ára gamli Kane er búinn að skora tvö mörk fyrir Spurs í vetur en hefur ekki tekist að skora í síðustu fjórum leikjum fyrir Spurs og landsliðið. Því örlar nú á gagnrýni.

„Harry er auðvelt skotmark. Það er auðvelt að ráðast á hann þegar hann skorar ekki mörk. Hann er frammi, ef liðið skorar ekki og við töpum þá er auðvelt að kenna honum um,“ sagði Pochettino en hans menn mæta Inter í Meistaradeildinni í kvöld.

„Ef fólk skoðar hvað hann færir liðinu á síðustu fjórum árum þá er erfitt að kvarta yfir því að hann skori ekki.“

Tottenham hefur tapað tveimur deildarleikjum í röð en ætlar að koma sér á sigurbraut í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×