Handbolti

Seinni bylgjan: Logi vill að Viktor Gísli fari til ÍBV

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Viktor Gísli þarf að verja mikið af dauðafærum.
Viktor Gísli þarf að verja mikið af dauðafærum.
Það var mikil umræða um efnilegasta markvörð landsins, Viktor Gísla Hallgrímsson, í Seinni bylgjunni í gær og því velt upp hvort hann hefði ekki gott af því að skipta um félag.

Áhugaverðri tölfræði var varpað á skjáinn sem sýnir að Viktor þarf að glíma við ansi stóran skammt af dauðafærum.

„Kannski þarf hann að fara í annað lið þar sem er betri vörn fyrir framan hann. Þar sem hann getur unnið með vörninni til að bæta þann hluta leiksins,“ sagði Gunnar Berg Viktorsson en ef hann ætti að skipta um lið hvert ætti hann að fara?

„ÍBV á morgun. Það væri gott næsta skref,“ sagði Logi Geirsson.

Umræðuna um Viktor Gísla má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×