Lífið

Kaleo hættir við tónleika vegna Flórens

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jökull mun ekki leiða sitt band á sviðið í Norður-Karólínu.
Jökull mun ekki leiða sitt band á sviðið í Norður-Karólínu.
Gríðarmikil flóð vegna fellibylsins Flórens eru í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum og hefur fellibylurinn haft mikil og slæm áhrif á svæðinu.

Hljómsveitin íslenska Kaleo átti að koma fram á tónleikum í Norður-Karólínu í vikunni en sveitin hefur nú tilkynnt að ekkert verði af tónleikunum vegna fellibylsins.

Að minnsta kosti fimmtán manns hafa látið lífið vegna Flórens í Norður- og Suður-Karólínu frá því að fellibylurinn gekk á land síðastliðinn fimmtudag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×