Sport

Kóreuþjóðirnar vilja halda Ólympíuleikana 2032

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér eru þjóðarleiðtogarnir léttir, ljúfir og kátir í gær.
Hér eru þjóðarleiðtogarnir léttir, ljúfir og kátir í gær. vísir/getty
Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, og Moon Jae, forseti Suður-Kóreu, gáfu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í gær þar sem fram kemur að þjóðirnar ætla að sækja sameiginlega um að halda Ólympíuleikana árið 2032.

Ekkert frekar var gefið upp um áætlanir þjóðanna. Til að mynda í hvaða borgum væri áætlað að hafa ákveðnar greinar. Venjulega er tilkynnt sjö árum fyrir leikana hvar þeir fara fram. Kóreuþjóðirnar hafa því fram til 2025 til þess að ganga frá sínum málum.

Þýskaland hefur þegar greint frá því að landið ætli að sækja um að halda leikana árið 2032. Brisbane í Ástralíu vill líka halda leikana og svo eru Indverjar að skoða möguleikann á að sækja um.

Ólympíuleikarnir fóru fram í Seoul í Suður-Kóreu árið 1988 og svo voru Vetrarólympíuleikarnir í landinu fyrr á árinu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti er á meðal þeirra sem er mjög spenntur fyrir þessari umsókn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×