Enski boltinn

Segir Daniel Sturridge vera 50 milljóna punda framherja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daniel Sturridge fagnar marki sínu í gærkvöldi.
Daniel Sturridge fagnar marki sínu í gærkvöldi. Vísir/Getty
Daniel Sturridge nýtti vel sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði Liverpool í gærkvöldi með því að skora fyrsta mark liðsins í 3-2 sigri á Paris Saint-Germain.

Sturridge kom inn í liðið fyrir Brasilíumanninn Roberto Firmino sem var að jafna sig eftir augnapot Jan um helgina. Firmino kom síðan inná fyrir Sturridge og skoraði sigurmark Liverpool í leiknum.

Innkoma Daniel Sturridge í byrjunarliðið í gær er aftur á móti enn eitt dæmið um þá miklu breidd sem býr nú í Liverpool-liðinu.

Stephen Warnock, nú knattspyrnuspekingur hjá BBC og fyrrverandi leikmaður Liverpool, ræddi leikmanninn Daniel Sturridge á BBC Radio 5 live.

Warnock er á því að Daniel Sturridge verði að fá stórt hlutverk á tímabilinu ætli Liverpool að berjast um titla á mörgum vígstöðum.

„Hann er kannski ekki eins vinnusamur án bolta og Roberto Firmino en hann kemur um leið með eitthvað annað inn í liðið. Þegar hann fær boltann þá geta hlutirnir gerst alveg eins og þegar Firmino fær hann,“ sagði Stephen Warnock.





Daniel Sturridge hefur misst mikið úr á síðustu tímabilum vegna meiðsla og margir voru búnir að afskrifa hann eða bjuggust við því að Jürgen Klopp myndi selja hann í sumar. Sturridge átti hins vegar frábært undirbúningstímabil og hefur nú stimplað sig inn á tímabilinu sjálfu.

„Jürgen Klopp vildi sjá á undirbúningstímabilinu hvort Daniel væri heill og hungraður og hugarfar hans var hárrétt. Ég sá mikið af leikjunum á undirbúningstímabilinu og Daniel Sturridge spilaði mjög vel,“ sagði Warnock.

„Það er þess vegna að Klopp gaf honum hans fyrsta byrjunarliðsleik síðan í nóvember 2017. Þú lítur ekkert framhjá Daniel þegar hann er heill og klár í slaginn. Við erum að tala um 50 milljóna punda framherja því hann er mögulega heimsklassa framherji,“ sagði Warnock.

Það má sjá markið hans á móti PSG í gær hér fyrir neðan.

„Það er auðvitað líka mikilvægt að hann þekki hlutverk sitt í liðinu því ef að þeir Sadio Mane, Firmino og Mohamed Salah eru allir klárir þá munu þeir spila flesta leikina. Allir leikmenn þurfa aftur á móti einhverja hvíld þegar liðið er á fullu í Evrópukeppninni líka og það koma leikir þar sem liðið þarf að treysta á Daniel Sturridge,“ sagði Warnock.

„Salah sem dæmi lítur ekki út fyrir að vera 100 prósent núna. Hann virkaði þreyttur síðustu 20 til 25 mínúturnar á móti PSG. Þar var því tækifæri fyrir Xherdan Shaqiri að koma inn og sýna sig og sanna,“ sagði Warnock.

„Leikmennirnir sem Liverpool fékk í sumar er stór hluti ástæðunnar að ég tel að liðið geti gert betur í Meistaradeildinni en í fyrra þegar þeir urðu í öðru sæti. Leikmennirnir sem voru í fyrra geta nú litið í kringum sig í klefanum og séð að liðið er með betri leikmenn en í fyrra,“ sagði Warnock.

„Sturridge er auðvitað ekki nýr leikmaður en það er svo sjaldgæft að hann sé heill og í formi að það er alveg eins og hann sé nýr leikmaður. Klopp tók vel á móti honum með stóru faðmlagi á hliðarlínunni og hrósaði honum síðan mikið á blaðamannafundinum eftir leik. Allt þetta mun gefa Sturridge mikið sjálfstraust fyrir framhaldið,“ sagði Warnock en það má lesa allan pistilinn hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×