Sport

Sjáðu það besta af blaðamannafundum Conors

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor sleppir því vonandi að kasta orkudrykkjum um allt húsið á morgun.
Conor sleppir því vonandi að kasta orkudrykkjum um allt húsið á morgun. vísir/getty
Eftir rúman sólarhring byrjar Conor McGregor aftur formlega í vinnunni sinni hjá UFC. Það hafa margir beðið eftir því.

Annað kvöld mun Conor McGregor hitta Rússann Khabib Nurmagomedov á blaðamannafundi í New York. Það er táknrænn staður fyrir fundinn því í borginni réðst Conor að rútu Khabib og kom sér í mikil vandræði fyrr á árinu.

Þau vandræði eru meira og minna að baki og því ekkert sem stöðvar Conor frá því að berjast við Khabib þann 6. október næstkomandi í Las Vegas.

Bardagi Conors og Khabib verður stærsti bardagi í sögu UFC. Írinn kjaftfori gegn Rússanum ósigrandi sem hefur glímt við skógarbirni frá barnæsku.

Conor hefur alla tíð blómstrað á blaðamannafundum UFC og fólk bíður því eftir mikilli skemmtun frá honum á morgun. Til að stytta biðina má sjá brot af því besta frá Conor hér að neðan.





MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×