Handbolti

Guðjón Valur bestur í Meistaradeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur fagnar í leiknum en Aron Pálmarsson er ekki jafn hress.
Guðjón Valur fagnar í leiknum en Aron Pálmarsson er ekki jafn hress. löwen
Hinn 39 ára gamli landsliðsfyrirliði, Guðjón Valur Sigurðsson, er enn í heimsklassa eins og hann minnti handboltaheiminn rækilega á er lið hans mætti Barcelona í Meistaradeildinni.

Guðjón Valur skoraði sex mörk úr sex skotum fyrir Rhein-Neckar Löwen gegn sínu gamla félagi frá Spáni.

Löwen vann leikinn með Guðjón Val í toppformi. Hann hefur nú verið valinn besti leikmaður 1. umferðarinnar í Meistaradeildinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×