Innlent

Safnað fyrir lækniskostnaði kisu

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ekki hefur verið unnt að ná þeim sem pyntaði kött í Hellisgerði í Hafnarfirði í vikunni. Málið hefur verið tilkynnt til Matvælastofnunar. Hópur fólks hefur boðist til að taka þátt í lækniskostnaði vegna umönnunar hans við Dýraspítalann í Garðabæ.

Í vikunni björguðu mægðin ketti í Hellisgerði í Hafnarfirði sem hafði verið bundinn, píndur og hengdur upp við trjágrein. Farið var með köttinn sem kemur frá Dýrahjálp Íslands á Dýraspítalann í Garðabæ þar sem hann verður fram yfir helgi. Sonja Stefánsdóttir er hjá Dýrahjálpinni.

„Hún kom til okkar fyrir sex árum, hún var svona fjósakisa og var kettlingafull þegar hún kom. Hún var annars búin að vera á fósturheimili í þrjá daga þegar hún gaut svo kettlingunum sínum,“ segir Sonja.

Það var svo sjálfboðaliði hjá Dýrahjálp sem tók kisu að sér sem heitir Lísa.

„Hún er enn þáupp á dýraspítala og verður þar fram yfir helgi allavegana. Hún er byrjuð að borða að mér skilst og ef maður kíkir á hana og klappar henni þá mjálmar hún alveg. Hún er svona að jafna sig. Hún þarf enn þá smá svona hjúkrun þegar hún kemur heim til eiganda síns en hún er heppinn því að eigandinn er hjúkrunarfræðingur,“ segir Sonja.

Vísir
Hópur fólks á Facebook hefur boðist til að taka þátt í lækniskostnaði vegna umönnunar kisunnar á dýraspítalanum.

Það var eitthvað frábært fólk sem fór að tala um það á samfélagsmiðlum að þeir vildu styrkja og taka þátt í kostnaði sem þetta myndi kosta að koma henni aftur til heilsu. Það eru rosa margir sem hafa boðið sig fram til þess að taka þátt í þessu. Við töluðum við Garðabæinn og kostnaðurinn er ekki vitaður enn þá. Ég held hún fari ekkert af stað fyrr en eftir helgina og við munum þá bara senda út tilkynningu á síðuna okkar,“ segir Sonja.

Málið hefur verið tilkynnt til matvælastofnunar sem tekur svo ákvörðun um hvort að það verði kært til lögreglu.

 


Tengdar fréttir

Köttur í Hafnarfirði pyntaður, bundinn og hengdur

Fimm ára drengur fann kött sem hafði verið pyntaður, bundinn og hengdur í trjágrein í runna í Hellisgerði í Hafnarfirði í gær. Ekki er búið að finna dýraníðinginn en Lögregla leitar hans. Móðir hans óskar eftir því að eftirlitsmyndavélum verði komið fyrir í garðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×