Handbolti

Alfreð og félagar með góðan sigur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alfreð er á sínu síðasta tímabili sem þjálfari Kiel
Alfreð er á sínu síðasta tímabili sem þjálfari Kiel Getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska handboltaliðinu Kiel unnu fjögurra marka sigur á Lemgo í þýsku Bundesligunni í handbolta í kvöld.

Kiel var með 14-9 forystu í hálfleik en Lemgo náði að koma til baka um miðbik seinni hálfleiks og minnka muninn í aðeins eitt mark. Þeir náðu hins vegar aldrei að jafna leikinn og sigurinn að lokum nokkuð öruggur hjá Kiel. Lokatölur 28-24.

Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark fyrir Füchse Berlin sem tapaði með fimm mörkum fyrir Flensburg-Handewitt.

Magdeburg er enn ósigrað eftir þrjá leiki, líkt og Flensburg, eftir sigur á Wetzlar 31-26. Leipzig vann stórsigur á BBM Bietigheim, 31-24.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×