Fótbolti

Fremstu stjórar Evrópu vilja losna við útivallamarkaregluna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valsmenn standa hér svekktir eftir en skömmu áður höfðu þeir klúðrað dauðafæri í heimaleiknum á móti Sheriff Tiraspol.
Valsmenn standa hér svekktir eftir en skömmu áður höfðu þeir klúðrað dauðafæri í heimaleiknum á móti Sheriff Tiraspol. Vísir/Daníel
Fremstu knattspyrnustjórar Evrópu hafa sett pressu á Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, um að gera breytingar á reglunni um útivallarmörk og þeir vilja líka að öll félög sitji við sama borð þegar kemur að lokunartíma félagsskiptagluggans.

Íslandsmeistarar Vals eru eitt af fórnarlömbum útivallarmarkareglunnar í haust en Valsliðið datt út úr Evrópudeildinni á móti Sheriff Tiraspol á færri mörkum skoruðu á útivelli.

„Þjálfararnir halda því fram að skora mörk á útivelli sé ekki eins erfitt og það var einu sinni,“ sagði Giorgio Marchetti, aðstoðarframkvæmdastjóri UEFA, við BBC eftir fund þjálfaranna í Sviss.

„Þeir vilja að við endurskoðum þessa reglu og það munum við líka gera,“ sagði Marchetti.





Á þessum árlega fundi voru meðal annars Jose Mourinho (stjóri Manchester United), Unai Emery (stjóri Arsenal), Arsene Wenger, Massimiliano Allegri (stjóri Juventus), Julen Lopetegui (stjóri Real Madrid), Carlo Ancelotti (stjóri Napoli) og Thomas Tuchel (stjóri Paris St-Germain).

Reglan um útivallarmörkin kom fyrst fram í Evrópukeppni bikarhafa árið 1965 en þá hafði verið gripið til þess ráðs að kasta upp krónu eða spila annan leik á hlutlausum velli á tímum þegar ferðalög voru mun erfiðari.

Marchetti sagði að reglan hafi nú þau áhrif að heimaliðin taki enga áhættu og leggi ofurkapp á því að halda hreinu og fá ekki á sig þetta „hræðilega“ útivallarmark.

Knattspyrnustjórarnir pressuðu líka á það að félagsskiptaglugginn myndi loka á sama tíma í Evrópu og í Englandi eða fyrir tímabilið. Enska úrvalsdeildin færði lokunartíma gluggans fram fyrir mótið í haust. Gluggarnir á Spáni, á Ítalíu, í Þýskalandi og í Frakklandi sem dæmi lokuðu ekki fyrr en í lok ágúst.

„Þjálfararnir eru á því að það eiga að vera einn algildur gluggi og sá gluggi ætti að lokast áður en tímabilið hefst. Hugmyndin núna er að reyna að láta það verða að veruleika,“ sagði Marchetti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×