Matur

Einfalt með Evu: Carpaccio, hægeldaðir lambaskankar, mozzarella salat og Tarte tatin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eva Laufey.
Eva Laufey. Vísir/Ernir

Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 í síðustu viku en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.

Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Hér að neðan má lesa hvernig maður gerir réttina Carpaccio með piparrótarsósu, mozzarella salat með stökkri hráskinku, hægeldaðir lambaskankar með hökkuðum tómötum og rósmarín og síðast en ekki síst tarte tatin.

Nauta carpaccio með piparrótarsósu

Fyrir 4

  • 400 g nautalund
  • 1 msk góð ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 150 g klettasalat
  • 1 sítróna
  • Parmesan ostur, magn eftir smekk

    Aðferð:
  1. Hreinsið nautalundina mjög vel og skerið í eins þunnar sneiðar og þið getið. (það er gott ráð að setja lundina í frysti í 30 – 40 mínútur áður, en með því er enn betra að skera kjötið þunnt niður).
  2. Stráið salti og pipar yfir kjötið, dreipið góðri ólífuolíu yfir og kreistið smá sítrónusafa yfir kjötið í lokin.
  3. Ristið furuhnetur á pönnu.
  4. Skolið og þerrið klettasalat, leggið salatið yfir kjötið.
  5. Rífið niður parmesan osti og nóg af honum.
  6. Í lokin sprautið þið piparrótarsósunni á diskana eða mótið fallegar kúlur með teskeiðum.
  7. Berið strax fram og njótið!

    Piparrótarsósa
  • 3 dl sýrður rjómi
  • Salt og pipar
  • 3 tsk piparrótarmauk
  • 1 msk sítrónusafi

    Aðferð:
  1. Blandið sýrða rjómanum og piparrótinu saman.
  2. Kryddið til með salti og pipar og blandið sítrónusafanum út í.
  3. Setjið nokkrar skeiðar ofan nautakjötið og berið strax fram.
Carpaccio með piparrótarsósu

Hægeldaðir lambaskankar með hökkuðum tómötum og rósmarín

Þessi uppskrift er tilvalin á haustin eða að vetri til, þegar við þurfum sárlega á mat að halda sem yljar okkur að innan.

Það er líka eitthvað svo sérstaklega notalegt að hægelda mat – það færist svo mikil ró yfir heimilið.

  1. 4 lambaskankar, snyrtir
  2. 1 msk ólífuolía eða smjör
  3. Salt og pipar
  4. 1 laukur        
  5. 5 gulrætur
  6. 400 ml hakkaðir tómatar  + 1 dl soðið vatn
  7. 4 msk rósmarín
  8. 300 g perlukúskús



    Aðferð:
  1. Hitið ofninn í 160°C.
  2. Brúnið lambaskankana á öllum hliðum upp úr smjöri í góðum potti sem má fara inn í ofn. Kryddið til með salti og pipar.
  3. Látið skankana standa með beinið upp í pottinum.
  4. Skerið grænmetið smátt og setjið út í pottinn ásamt rósmarín, hökkuðum tómötum og 1 dl af soðnu vatni.
  5. Setjið lok á pottinn og inn í ofn við 160°C í 2-3 klukkustundir. Það er gott ráð að ausa yfir kjötið tvisvar til þrisvar sinnum.
  6. Þegar um það bil hálftími er  eftir af eldunartímanum takið þið lokið af pottinum og eldið áfram í hálftíma.
  7. Berið fram með perlukúskús sem þið eldið samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
Hægeldaðir lambaskankar með hökkuðum tómötum og rósmarín.

Ljúffengt salat með mozzarella osti og tómötum

  1. 2 stórar mozzarella kúlur
  2. 15-20 kirsuberjatómatar
  3. 2 buff tómatar
  4. 5 sneiðar hráskinka
  5. ½  búnt basilíka
  6. 1 dl ólífuolía
  7. Salt og pipar
  8. Balsamikedik



    Aðferð:
  1. Skerið niður tómata og leggið á fat.
  2. Rífði ostinn yfir tómata og kryddið með salti.
  3. Steikið hráskinku á pönnu þar til hún er orðin stökk, leggið hana yfir salatið.
  4. Merjið saman basilíku og ólífuolíu þar til blandan er orðin að pestói, kryddið til með salti og pipar.
  5. Setjið pestóið yfir salatið ásamt ferskum basilíkublöðum.
  6. Kryddði salatið með salti og pipar. Sáldrið ólífuolíu yfir ásamt smávegis af balsamikediki í lokin áður en þið berið salatið fram!
Mozzarella salat með stökkri hráskinku.

TARTE TATIN

  1. 1 pakki smjördeig
  2. 5 perur eða epli
  3. 4 msk sykur
  4. 4 msk smjör
  5. 1 tsk sítrónubörkur
  6. Vanilluís



    Aðferð:
  1. Stillið ofninn í 180°C.
  2. Afhýðið eplin og skerið í nokkra bita.
  3. Hitið sykurinn á pönnu sem á fara inn í ofn. Um leið og hann byrjar að bráðna þá bætið þið smjörinu út á pönnuna.
  4. Raðið eplabitunum á pönnuna og dreifið rifnum sítrónuberki yfir.
  5. Snúið eplunum við einu sinni og steikið í 3 -4 mínútur á hvorri hlið.
  6. Smjördeigið á að vera örlítið stærra en pannan sjálf og gott er að þjappa köntunum ofan í pönnuna svo það myndist ekki gat.
  7. Setjið pönnuna inn í ofn og bakið við 180°C í 40 – 45 mínútur.
  8. Um leið og smjördeigið er orðið gullinbrúnt og búið að lyfta sér er kakan klár.
  9. Takið pönnuna út úr ofninum, setjið þann disk sem kakan á að fara á yfir pönnuna og hvolfið henni eins hratt og þið getið en munið að fara varlega.

    Sáldrið flórsykri yfir kökuna í lokin og berið hana fram með vanilluís.
Tarte tatin.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×