Bíó og sjónvarp

Lof mér að falla valin á stærstu kvikmyndahátíð Asíu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Baldvin Z ásamt Birgi Erni og framleiðendum kvikmyndarinnar.
Baldvin Z ásamt Birgi Erni og framleiðendum kvikmyndarinnar. mynd/mummi lú
Lof mér að falla mun taka þátt í World Cinema hluta Busan, stærstu kvikmyndahátíðar Asíu, sem fram fer í Suður Kóreu 4.-13. október.

Lof mér að falla er nýjasta mynd Baldvins Z en myndin verður heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto á morgun 6. september og hér á landi daginn eftir.

Myndin segir frá hinni 15 ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu.

Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Tólf árum síðar liggja leiðir þeirra óvænt saman og verður uppgjör á milli þeirra óumflýjanlegt.

Með aðalhlutverk í Lof mér að falla fara leikkonurnar Elín Sif Halldórsdóttir og Eyrún Björk Jakobsdóttir en leikarinn Þorsteinn Bachman fer einnig með stórt hlutverk. Í myndinni fara einnig með hlutverk Sturla Atlason, Edda Björgvinsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Halldór Halldórsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×