Viðskipti innlent

Til­boð Öryggis­mið­stöðvarinnar villandi og stóð of lengi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Öryggismiðstöðin fékk skömm í hattinn frá Neytendastofu.
Öryggismiðstöðin fékk skömm í hattinn frá Neytendastofu. Vísir/eyþór
Auglýsingar Öryggismiðstöðvar Íslands um fría uppsetningu á svokölluðu Snjallöryggi fyrir heimili voru villandi að mati Neytendastofu. Í auglýsingunum væri ekki að finna aðrar upplýsingar en að tilboðið gildi í mánuð í senn þrátt fyrir að tilboðið hafi verið í gildi samfleytt í meira en hálft ár.

Reglur kveða á um að þegar „vara eða þjónusta hefur verið seld á lækkuðu verði í sex vikur skal lækkað verð vera venjulegt verð.“

Verð uppsetningar, 19.900 krónur, var tekið fram í auglýsingunum með yfirstrikun og að mati Neytendastofu kynnu slíkar auglýsingar að gefa til kynna að verðhagræði sé til staðar sem sé ekki raunverulegt. 

 

Yfirstrikunin þykir villandi að mati Neytendastofu.Facebook
Þar að auki sé óheimilt að lýsa einstökum þáttum í pakkatilboði með orðinu „frítt“ ef kostnaður þess þáttar er innifalinn í verði pakkatilboðsins.

Neytendastofa óskaði því eftir upplýsingum frá Öryggismiðstöðinni í fjórum liðum, sem allir lutu að hinni ókeypis uppsetningu.

Í svörum Öryggismiðstöðvarinnar til Neytendastofu vegna málsins kom meðal annars fram að fyrirtækið teldi auglýsingar ekki vera blekkjandi og ekki hafi staðið til að blekkja neytendur.

Upphaflega hafi tilboðið aðeins átt að standa skamman tíma en ákveðið hafi verið að framlengja því - án þess að ætlunin hafi verið að fella niður uppsetningargjaldið varanlega.

Alla jafna rukki Öryggismiðstöðin fyrir uppsetningu á öryggiskerfi. Tilboðið um „fría uppsetningu“ nái aðeins til þess sem Öryggismiðstöðin nefni „Snjallöryggi fyrir heimili“ en að almennt verð fyrir uppsetningar séu auglýstar 19.900 krónur með virðisaukaskatti.

Öryggismiðstöðin hafnaði því jafnframt að uppsetningin væri innifalin í pakkatilboðinu og sýndi Öryggismiðstöðin fram á að hafa rukkað fyrirtæki um umræddar 19.900 krónur fyrir uppsetningu.

Niðurstaða Neytendastofu var á þá leið að Öryggismiðstöðin hafi engu að síður viðhaft villandi auglýsingar á tilboðsverði í mánuð í senn, þrátt fyrir að hið lækkaða verð hafi gilt í sjö mánuði. Öryggismiðstöðinni hefur því verið bannað að halda auglýsingaherferð sinni áfram, ellegar hljóta sektir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×