Erlent

Pence og Pompeo segjast ekki vera huldumaðurinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Mike Pence og Mike Pompeo.
Mike Pence og Mike Pompeo. Vísir/AP/EPA
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, þvertekur fyrir að hafa skrifað nafnlausa grein sem birt var í New York Times í gærkvöldi og það gerir Mike Pompeo, utanríkisráðherra, einnig. Umrædd grein var skrifuð af „háttsettum embættismanni“ sem vinnur fyrir Donald Trump, forseta, þar var Trump harðlega gagnrýndur og var því haldið fram að starfsmenn hans vinni á bak við tjöldin til að koma í veg fyrir að hann valdi Bandaríkjunum skaða.

Fjölmargir hafa haldið því fram að Pence hafi skrifað greinina og byggir sú kenning á því að orðið „lodestar“ sé í henni. Pence hefur oft notað þetta sjaldgæfa orð í máli sínu.

Sjá einnig: Embættismenn Trump telja hann siðlausan og reyna að hemja verstu hvatir hans



Í yfirlýsingu frá skrifstofu Pence segir að hann merki þær greinar sem hann skrifi. Enn fremur segir starfsmaður hans á Twitter að bæði NYT og huldumaðurinn ættu að skammast sín fyrir greinina sem hann segir vera falska og heigulslega.

Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem staddur er í Indlandi gagnrýndi einnig birtingu greinarinnar og þvertók fyrir að hafa skrifað hana. Hann sagði sömuleiðis að ef greinin væri raunveruleg ætti sá sem skrifað hana ekki að vera svo undirförull og fara þessa leið með gagnrýni sína.



Pompeo sagði að ef viðkomandi aðili sæi sér ekki fært að fylgja skipunum forsetans ætti hann að hætta í starfi sínu.

„Þessi persóna ákvað, samkvæmt New York Times, þess í stað að vera áfram og grafa undan því sem Trump og ríkisstjórn hans eru að reyna að gera,“ sagði Pompeo og bætti við: „Og ég verð að segja ykkur, að ég er uggandi yfir viðleitni fjölmiðla til að grafa undan ríkisstjórninni.“

Sjá einnig: Trump krefst þess að New York Times gefi upp hver nafn­lausi em­bættis­maðurinn er



Donald Trump hefur brugðist reiður við greininni og samkvæmt Washington Post er huldumannsins leitað innan veggja Hvíta hússins og ríkisstjórnarinnar, sem jafnvel væri hægt að kalla Heimildarmenn WP segja Trump líta á skrifin sem svik og jafnvel landráð og hann sé ævareiður. Fyrstu viðbrögð hans voru til dæmis að tísta orðinu landráð með engu öðru en spurningarmerki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×