Erlent

Rússar reiðir yfir ásökunum Breta

Samúel Karl Ólason skrifar
Hinir grunuðu í Salisbury.
Hinir grunuðu í Salisbury. Vísir/AP
Dmitry Peskov, talsmaður Vladimir Pútín, forseta Rússlands, segir rangt að Pútín beri ábyrgð á eitrun fyrrverandi njósnarans Sergei Skripal og dóttur hans Júlíu, eins og yfirvöld Bretlands segja. Þá segir hann enga rannsókn standa yfir í Rússlandi vegna þeirra tveggja manna sem yfirvöld Bretlands hafa ákært fyrir eitrunina og enga ástæðu til að hefja slíka rannsókn.



Mennirnir voru ákærðir í Bretlandi í gær.

Þeir höfðu flogið frá Moskvu til London tveimur dögum fyrir árásina á feðginin, sem átti sér stað þann 4. mars. Degi fyrir árásina tóku þeir lest til Salisbury og náðust myndir af þeim nálægt heimili Skripal. Þann 4. mars fóru þeir sama ferðalag til Salisbury og náðust aftur myndir af þeim nálægt heimili Skripal. Lögreglan telur að þá hafi þeir sprautað taugaeitrinu Novichok á útidyr Skripal.

Skömmu seinna fóru þeir aftur til London og beint á Heathrow flugvöllinn og þaðan flugu þeir til Moskvu.

Smyglað í ilmvatnsflösku

Þann 30. júní urðu þau Dawn Sturgess og Charlie Rowley einnig fyrir eitrun vegna Novichok á heimili þeirra. Sturgess dó nokkrum dögum seinna en þau eru ekki talin tengjast Rússlandi á nokkurn hátt. Rowley segist hafa fundiði ilmvatnsflösku sem hann gaf Sturgess. Talið er að taugaeitrið hafi verið í þeirri flösku og því hafi verið smyglað inn í landið þannig.

Þar að auki fundust leifar af Novichok á hótelherbergi þeirra.

Mennirnir voru nafngreindir sem Alexander Petrov og Ruslan Boshirov en talið er að um dulnefni sé að ræða. Þeir ferðuðust á löggildum rússneskum vegabréfum.



Sjá einnig: Pútín jók trúnað um njósnara rétt fyrir ásakanir um taugaeitursárásina



Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, sagði þingmönnum í gær að yfirvöld Bretlands telji mennina tvo vera útsendara GRU, leyniþjónustu herafla Rússlands, og að ljóst sé að ákvörðun um árásina hafi verið tekin á hæstu stigum stjórnvalda Rússlands. Það er, að ákvörðunin hafi verið tekin af Vladimir Pútín.

Peskov segir ásakanir May vera óásættanlegar og að enginn innan stjórnvalda Rússlands hafi komið að árásinni á nokkurn hátt. Hann sagði einnig að engin aðstoðarbeiðni við að bera kennsl á mennina hefði borist frá Bretlandi. Rússar hafi farið fram á að fá fingraför mannanna en Bretar hafi neitað þeirri beiðni.



Sakar Breta um að breyta myndum

Maria Zakharova, talskona Utanríkisráðuneytis Rússlands, hefur líkt ásökunum Breta eins og „hringekju helvítis“ sem virðist aldrei ætla að stöðvast og sakaði hún yfirvöld Bretlands um að „leppalúðast“ og að breyta myndum af mönnunum.

Vísaði hún sérstaklega til tveggja mynda sem sjá má hér að neðan af mönnunum á Gatwick-flugvellinum þann 2. apríl. Myndirnar eru báðar tímasettar 16:22:43.

„Sami staðurinn, sami gangurinn og tímamerkingarnar eru þær sömu. Því er ljóst að annað hvort hefur tímamerkingunum verið breytt eða þessir meintu útsendarar GRU lærðu að ganga á sama staðnum á sama tíma og birtast á tveimur mismunandi myndum. Þetta er leppalúðun á guðs-stigi,“ sagði Zakharova.



Engum myndum breytt

Staðreyndin er þó sú að myndirnar voru teknar á sama tíma á tveimur mismunandi göngum við á stað þar sem farþegar úr millilandaflugi koma úr flugvélum sínum. Guardian segir marga svona ganga vera þar.

Skripal eitrunin leiddi til umfangsmikilli refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn Rússlandi og voru rússneskir erindrekar og grunaðir njósnara vísað frá fjölda landa í massavís.

Taugaeitrið Novichok var þróað í Rússlandi á tímum Sovétríkjanna.

Bretar munu kynna niðurstöður sína á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna seinna í dag.

Mennirnir tveir við komuna til Bretlands. Myndirnar eru báðar tímasettar 16:22:43.Vísir/AP

Tengdar fréttir

Bandaríkin refsa Rússum fyrir Skripal-árásina

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna segir ríkið hafa komist að þeirri niðurstöðu að Rússar hafi beitt efnavopnum gegn rússneskum fyrrverandi njósnara í Bretlandi.

Sakar Rússa um að nota Bretland sem „ruslatunnu“ fyrir eitur

Innanríkisráðherra Bretlands, Sajid Javid, sakar rússnesk stjórnvöld um að nota Bretland sem "ruslatunnu“ fyrir eitur eftir að í ljós að komið að parið sem veiktist af völdum taugaeitursins novichok hafði handleikið einhvern hlut sem reyndist eitraður.

Kominn til meðvitundar eftir taugaeitrun

Charlie Rowley, sem komst í snertingu við taugaeitrið Novichok, er kominn til meðvitundar eftir að hafa legið meðvitundarlaus á gjörgæsludeildinni á Spítala í Salisbury á Bretlandi frá 30. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×