Fótbolti

Benzema og Bale „eins og krakkar“ á æfingum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Benzema og Bale fagna marki með Real Madrid
Benzema og Bale fagna marki með Real Madrid Vísir/Getty
Julen Lopetegui tók við Real Madrid í sumar. Hann segir Karim Benzema og Gareth Bale minna sig á krakka á æfingum.

Bale hefur skorað í öllum þremur leikjum Real í deildinni til þessa og Benzema skoraði tvennu í tveimur leikjum í röð.

„Þeir voru, eru og munu áfram vera frábærir fótboltamenn,“ sagði Lopetegui. „Áhuginn og viljinn til að vinna vinnuna er frábær og þeir eru eins og litlir krakkar á æfingum.“

„Við erum frábært lið, án nokkurs vafa.“

Real byrjaði ekki vel á síðasta tímabili en er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki á þessu nýja tímabili líkt og Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×