Golf

Tiger Woods í „Living La Vida Loca“ formi á BMW

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods á hringnum í gær.
Tiger Woods á hringnum í gær. Vísir/Getty
Tiger Woods og Rory McIlroy eru efstir og jafnir eftir fyrsta daginn á BMW Championship mótinu sem er þriðja mótið af fjórum í úrslitakeppni FedEx bikarsins.

Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2013 sem Tiger Woods er í forystu eftir fyrsta dag á móti en hann átti frábæran hring í gær.

Tiger lék á 62 höggum eða átta höggum undir pari. Þetta er hans besti upphafshringur síðan árið 1999. Þegar Tiger var síðast á -8 eftir fyrstu átján holurnar á PGA-móti þá var vinsælasta lagið í Bandaríkjunum „Living La Vida Loca“ með Ricky Martin.





Það er líka hægt að setja þetta í samanburð með því að nefna það að þetta er aðeins í fjórða sinn á sautján mótum Tigers á árinu 2018 þar sem hann er undir parinu eftir fyrsta hring.

Það voru einkum fyrri níu holurnar sem kveiktu í þessu hjá honum en Tiger lék þær á aðeins 29 höggum þar sem hann fékk einn örn og fjórar fugla. Tiger var því -6 eftir aðeins níu holur.





Þrátt fyrir þessa stórbrotnu spilamennsku þá er Tiger Woods ekki einn í efsta sætinu því Norður-Írinn Rory McIlroy spilaði hringinn líka á 62 höggum. Xander Schauffele er síðan einu höggi á eftir og Justin Thomas í 4. sætinu tveimur höggum á eftir efstu mönnum.

Um tíma leit meira að segja út að Rory McIlroy ætlaði að gera betur því McIlroy náði meðal annars sex fuglum í röð og komst níu höggum undir par. Rory var alls með tíu fugla á hringnum á móti sjö hjá Tiger en fékk engan örn eins og Tiger og einum fleiri skolla.

Hringurinn í gær var besti hringur Tigers síðan að hann lék á 61 höggi á WGC-Bridgestone Invitational mótinu árið 2013. Það er einmitt 79. og síðasta PGA-mótið sem hann vann.

Tiger Woods var að nota sinn þriðja pútter í þremur mótum en sá sem hann notaði í gær var Scotty Cameron púttarinn. Hann hefur einmitt unnið 13 af 13 risamótum sínum með honum.

Þessi spilamennska boðar líka gott því Tiger hefur unnið síðustu þrjú mót þar sem hann hefur spilað á -8 eða betur á fyrstu átján holunum.





Þrjátíu efstu kyflingarnir á FedEx stigalistanum að þessu móti loknu fá þáttökurétt á síðasta móti ársins.

Útsending frá öðrum hring hefst klukkan 18:00 á Golfstöðinni í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×