Sport

Meistararnir byrjuðu á sigri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ajayi fagnar hér öðru af tveimur snertimörkum sínum í nótt.
Ajayi fagnar hér öðru af tveimur snertimörkum sínum í nótt. vísir/getty
NFL-deildin hófst í nótt er meistarar Philadelphia Eagles tóku á móti Atlanta Falcons. Meistararnir sýndu í nótt að þeir ætla sér að verja titilinn með kjafti og klóm.

Þeir lönduðu nefnilega sætum 18-12 sigri gegn mjög sterku liði Fálkanna. Carson Wentz, aðalleikstjórnandi Eagles, er enn meiddur og það er því Super Bowl-hetjan Nick Foles sem stýrir umferðinni á vellinum. Foles kláraði 19 af 34 sendingum sínum í leiknum fyrir samtals 117 jördum. Hann náði ekki að kasta fyrir snertimarki en kastaði einu sinni frá sér. Slakur leikur hjá honum.

Það kom ekki að sök því enski hlauparinn Jay Ayjayi var í stuði. Hann hljóp 62 jarda og skoraði tvö snertimörk í leiknum.

Matt Ryan, leikstjórnandi Falcons,  kláraði 21 af 43 sendingum sínum í leiknum fyrir 251 jard. Hann náði þó ekki að kasta fyrir snertimarki og kastaði einu sinni frá sér.

Útherjinn Julio Jones var magnaður og greip tíu af sendingum Ryan fyrir 169 jördum. Hlaupaleikur liðsins olli vonbrigðum en þeir Tevin Coleman og Devonta Freeman hlupu samtals aðeins um 50 jarda.

Fálkarnir voru sterkara liðið í leiknum en gekk nákvæmlega ekkert inn á rauða svæðinu sem eru síðustu 20 jardar vallarins. Það er nákvæmlega sama vandamál og var að plaga þá á síðustu leiktíð.

Sigur Eagles var ekki fallegur en þó svo liðið hafi ekki spilað vel þá kláruðu þeir sterkt lið sem segir margt um styrkleika þeirra.

Tveir leikir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á sunnudag.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×