Innlent

Ólína vill verða þjóðgarðsvörður á Þingvöllum

Jakob Bjarnar skrifar
Ólína Þorvarðardóttir er líklega meðal þeirra sem þekktust eru á lista umsækjenda.
Ólína Þorvarðardóttir er líklega meðal þeirra sem þekktust eru á lista umsækjenda. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari

Staða þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum var auglýst laus til umsóknar fyrir skemmstu. Ólafur Örn Haraldsson hefur gengt þeirri stöðu undanfarin ár en hverfur nú af þeim vettvangi. Sé litið til fjölda umsækjenda, en þeir eru tuttugu talsins, má ljóst vera að þetta telst eftirsóknarverð staða. Þekktust meðal umsækjenda hlýtur að teljast Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur en hún er fyrrverandi alþingismaður auk þess sem hún vakti á árum áður athygli sem skeleggur sjónvarpsmaður. Annars er listi umsækjenda eftirfarandi:

Ana Soffía Félix Ribeiro verkfræðingur

Einar Á. E. Sæmundsson þjóðgarðsvörður

Friðrik Ólafsson verkfræðingur

Friðrik Rafnsson leiðsögumaður og þýðandi



Guðmundur Kjartansson hagfræðingur

Guðný Hlín Rossen viðskiptastjóri

Hafsteinn Hörður Gunnarsson skrifstofustjóri

Hrönn Pétursdóttir MBA, sjórnunarráðgjafi

Inga Sóley Kristjönudóttir fornleifafræðingur

Ingibjörg Björgvinsdóttir nemi

Lilja Gísladóttir þjóðfræðingur

Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur

Pálmi Kristinsson verkfræðingur

Rannveig María Jóhannesdóttir B.Sc. landfræði/ráðgjafi

Rúna Jóhannsdóttir B.A. í kínverskum fræðum

Sigurður Torfi Sigurðsson ráðgjafi og framhaldsskólakennari

Sigurþór Gunnlaugsson viðskiptafræðingur

Stefanía Ragnh. Ragnarsdóttir landvörður

Sverrir Jensson veðurfræðingur

Vilmundur Hansen grasafræðingur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×