Viðskipti innlent

Skúli segir útboð Wow á lokametrunum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Skúli Mogesen frá borðaklippingu við upphaf áætlunarflugs Wow Air til Miami.
Skúli Mogesen frá borðaklippingu við upphaf áætlunarflugs Wow Air til Miami. WOW
Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri Wow Air, áætlar að skuldabréfaútboði flugfélagsins ljúki öðru hvoru megin við helgina. Í samtali við fréttastofu Bloomberg segir Skúli að útboðinu hafi verið tel tekið í Skandinavíu og í Lundúnum, en á föstudag sagði Skúli að erlendir fjárfestar hefðu þegar skráð sig til þess að kaupa „verulegan hluta skuldabréfaútboðsins.“ Viðbrögðin gefi tilefni til að ætla að lágmarksmarkmiðið með útboðinu, að safna um 5,5 milljörðum króna, muni nást. Það sé þó ekki í fullkomlega í hendi en á lokametrunum að sögn Skúla.

Í umfjöllun Bloomberg er þess jafnframt getið að íslensk stjórvöld fylgist grannt með rekstri félagsins. Skúli minnist jafnframt á það sem fram kom í Markaðnum á miðvikudag; þó svo að gert sé ráð fyrir taprekstri hjá WOW á þessu ári er áætlað að viðsnúningur verði í rekstrinum á næsta ári og að flugfélagið muni hagnast um 17 milljónir dala árið 2019.

Í frétt Markaðarins á miðvikudag var þess jafnframt getið að fjárfestar sem taka þátt í skuldabréfaútboðinu fá kauprétt að hlutafé þegar félagið verður skráð á hlutabréfamarkað sem nemur helmingi af höfuðstól bréfanna.

Þeir sem kjósa að nýta kaupréttinn, sem verður að fullu framseljanlegur og gildir til fimm ára, innan 24 mánaða frá útgáfu skuldabréfanna munu fá að eignast hlutabréfin á gengi sem verður 20 prósentum lægra en skráningargengi félagsins. Nýti fjárfestar kaupréttinn síðar – meira en 24 mánuðum eftir útgáfu skuldabréfanna – fá þeir 25 prósenta afslátt af skráningargenginu.

Nánar í frétt Markaðarins: Spá 3,3 milljarða króna tapi WOW air á árinu

 


Tengdar fréttir

Skúli tryggt sér milljarða króna

Fjárfestar fá kauprétt að hlutafé í WOW air á 20 prósenta afslætti þegar félagið fer á markað. Nokkrir erlendir fjárfestar hafa skráð sig fyrir stórum hluta skuldabréfaútboðsins. Vextir á bréfunum í kringum 9 prósent.

Wow Air býst við 96% betri afkomu á síðari helmingi ársins

Wow Air reiknar með því að afkoma félagsins batni um 96 prósent á síðari helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í uppfærðri fjárfestakynningu félagsins vegna skuldabréfaútboðs sem nú stendur yfir. Icelandair er að spá 33 prósent lakari afkomu á sama tímabili.

Spá 3,3 milljarða króna tapi WOW air á árinu

Sérfræðingar Pareto segja flugfélagið þurfa nauðsynlega að bæta rekstrarafkomuna. Stjórnendur WOW air hyggjast birta fjárhagsupplýsingar eftir hvern ársfjórðung.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×