Viðskipti innlent

Færeyjaflug flyst frá Reykjavík vegna stærri flugvéla og lítillar flugstöðvar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Farþegar á leið til Færeyja ganga um borð í Airbus A319 þotu Atlantic Airways á Reykjavíkurflugvelli í morgun.
Farþegar á leið til Færeyja ganga um borð í Airbus A319 þotu Atlantic Airways á Reykjavíkurflugvelli í morgun. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur ákveðið að hætta að nota Reykjavíkurflugvöll í millilandaflugi milli Íslands og Færeyja. Eftir næsta mánuð verður eingöngu hægt að fljúga til Færeyja frá Keflavík. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. 

Það voru á annað hundrað farþega sem gengu um borð í Airbus A319 þotu Atlantic Airways á Reykjavíkurflugvelli í morgun. Þotur Færeyinga hafa undanfarin 23 ár verið stærstu vélar sem nýtt hafa flugvöll höfuðborgarinnar reglubundið í áætlunarflugi. Fram til ársins 2014 voru notaðar 95 sæta þotur af gerðinni BAe 146, en 144 sæta Airbus-vélar tóku við keflinu fyrir fjórum árum.

Færeyska þotan Ingálvur af Reyni að aka í flugtaksstöðu á norður/suður brautinni í Reykjavík í morgun.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson
En nú er að verða breyting á því færeyska félagið er að flytja sig alfarið til Keflavíkur. Í svari við fyrirspurn Stöðvar 2 nefnir talsmaður Atlantic Airways, Pætur G. Rasmussen, tvær ástæður fyrir þessari ákvörðun. Félagið muni fyrir næsta vor skipta út A319 þotum fyrir Airbus A320 þotur og þær þurfi lengri flugbrautir. Einnig segir hann það staðreynd að flugstöðin í Reykjavík henti ekki fyrir flugvélar með vel yfir eitthundrað farþega en A320-vélin tekur 168 farþega. 

Telja má Færeyjaflugið eitt þægilegasta millilandaflugið frá Íslandi, að minnsta kosti fyrir meirihluta landsmanna. Þannig er mun styttra út á flugvöll fyrir þá sem eru á Reykjavíkursvæðinu og farþegar þurfa auk þess ekki að mæta jafn snemma til innritunar fyrir brottför í Reykjavík eins og í Keflavík. 

Í stað þess að aka af stað til Keflavíkur upp úr klukkan sex í morgun dugði sennilega flestum í þessari vél í Reykjavík í dag að leggja af stað að heiman laust fyrir klukkan átta en brottför var áætluð klukkan 9.20. Þannig má ætla að heildarferðatími flestra til Færeyja geti lengst um nærri tvo tíma við það að flugið flytjist til Keflavíkur.

Talsmaður Atlantic Airways segir flugstöðina í Reykjavík óhentuga til að þjóna þotu með yfir eitthundrað farþega.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Við spurðum því Árna Gunnarsson, framkvæmdastjóra Air Iceland Connect, hvort þeir myndu núna nýta tækifærið til að hefja sjálfir Færeyjaflug að nýju beint frá Reykjavík en Árni sagði enga ákvörðun hafa verið tekna um slíkt. Árni segir að Air Iceland verði áfram söluaðili fyrir Atlantic Airways, þrátt fyrir flutning til Keflavíkur, en síðasta ferð þess frá Reykjavíkurflugvelli verður 26. október. 

Þess má geta að flugferðin til Færeyja í morgun tók aðeins eina klukkustund og fimm mínútur. Uppgefinn almennur flugtími milli Færeyja og Reykjavíkur hjá Atlantic Airways er annars ein klukkustund og tuttugu mínútur en lengist um tíu mínútur, í eina klukkustund og þrjátíu mínútur, við flutning til Keflavíkur. Bæði er flugleiðin lengri til Keflavíkur en einnig er aksturstími flugvéla milli flugstöðvar og flugbrautar lengri í Keflavík en í Reykjavík. 

Hér má sjá þotu Færeyinga í flugtaki frá Reykjavíkurflugvelli í morgun í frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×