Fótbolti

Vilja að allt Bretland en ekki bara England haldi HM 2030

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Beckham afhendir Sepp Blatter framboð enska sambandsins um að fá að halda HM 2018. Það vita allir hvernig það fór.
David Beckham afhendir Sepp Blatter framboð enska sambandsins um að fá að halda HM 2018. Það vita allir hvernig það fór. Vísir/Getty
Knattspyrnusamband Wales hefur nú stigið fyrsta skrefið í því að öll knattspynusamböndin sem tilheyra Stóra Bretlandi haldi saman heimsmeistarakeppnina árið 2030.

Jonathan Ford, framkvæmdastjóri velska knattspyrnusambandsins, telur að slíkt framboð væri bæði öflugt og heillandi. Þetta kemur fram á BBC Sport í Wales.

Samkvæmt þessari hugmynd þá ættu leikir á HM 2030 að fara fram í Englandi, Skotlandi, Wales og Norður Írlandi.

Velska knattspyrnusambandið hefur hafið óformlegar viðræður fyrir hin knattspyrnusamböndin til að kanna hug þeirra til slíks framboðs.

„Þessi hugmynd kom upp í samtölum okkar og er eitthvað sem við erum að skoða. Það er samt ekki komið lengra en þar og það verða engar staðfestar fréttir fyrr en í fyrsta lagi um mitt næsta ár,“ sagði Jonathan Ford við BBC Sport í Wales.





Næsta heimsmeistarakeppni fer fram í Katar árið 2022 og HM 2026 fer síðan fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Enska og skoska sambandið munu bæði koma að EM 2020 sem fer fram á leikvöngum út um alla Evrópu en síðasta heimsmeistaramótið í Bretlandi var haldið í Englandi árið 1966.

Enska knattspyrnusambandið tapaði á sínum tíma fyrir Rússlandi í baráttunni um að halda heimsmeistaramótið í sumar eins og frægt var.

Ein af rökunum fyrir samstarfi þjóðanna sem tilheyra Stóra Bretlandi er að slík samvinna myndi styrkja framboðið og að þetta væri líka eina leiðin fyrir Skotland, Wales og Norður Írland að fá að halda stórmót eins og HM.

Englendingar gætu vissulega sótt um það einir að halda HM 2030 en það væri aldrei raunhæft framboð fyrir hin þrjú samböndin. 

Framboð enska sambandsins fyrir HM 2018.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×