Fótbolti

Rosenborg í riðlakeppnina en Bröndby og Burnley úr leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Matti í stuði í leik með Rosenborg en hann var ekki í leikmannahópnum í kvöld.
Matti í stuði í leik með Rosenborg en hann var ekki í leikmannahópnum í kvöld. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson og Hjörtur Hermannsson eru úr leik í Evrópudeildinni en Matthías Vilhjálmsson og félagar eru komnir í riðlakeppnina.

Matthías Vilhjálmsson var ekki í leikmannahópi Rosenborgar sem vann 2-0 sigur á KF Shkendija í síðari leiknum og samanlagt 5-1.

Burnley er úr leik eftir 1-1 jafntefli við Olympiacos á heimavelli og samanlagt 4-2 en Jóhann Berg er að glíma við meiðsli sem halda honum frá landsleikjunum í byrjun næsta mánaðar.

Hjörtur Hermannsson sat allan tímann á bekknum er Bröndby tapaði 4-2 síðari leiknum geng Genk, samanlagt 9-4 í tveimur afar fjörugum knattspyrnuleikjum.

Það verður því Rosenborg sem verður í hattinum á morgun er dregið verður í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en Íslendingaliðin, Qarabag og Malmö verða einnig í hattinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×