Fótbolti

Sjö leikmenn sem menn eru með augun á í dag á lokadegi gluggans

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ivan Rakitic og dóttir hans gætu verið að flytja til Parísar.
Ivan Rakitic og dóttir hans gætu verið að flytja til Parísar. Vísir/Getty
Félagsskiptaglugginn í Evrópu lokar klukkan í dag og knattspyrnumenn gætu því verið á ferðinni á milli liða þennan síðasta dag ágústmánaðar þótt að glugginn í ensku úrvalsdeildinni hafi lokað fyrir 22 dögum.

Stóru liðin á Spáni, í Þýskalandi og í Frakklandi fá í dag síðasta tækifærið til að styrkja liðin sín þangað til að glugginn opnar aftur í janúar.





BBC fann til sjö leikmenn sem verður áhugavert að fylgjast með í dag en þeir gætu verið á ferðinni. Meðal þeirra eru landsliðsmennirnir Ivan Rakitic, Shinji Kagawa og Jerome Boateng.

Stærsta spurning er hvort Barcelona sé virkilega tilbúið að láta Ivan Rakitic fara nú þegar liðið er þegar búið að missa Andrés Iniesta í sumar.

Paris Saint-Germain gæti verið aðalleikari í dag en franska stórliðið er á eftir þeim Ivan Rakitic og Jerome Boateng.

Leikmennirnir sem BBC verður með augun á í dag eru:

Ivan Rakitic hjá Barcelona (Orðaður við Paris Saint-Germain)

- 30 ára króatískur miðjumaður

Jerome Boateng hjá Bayern München (Orðaður við Paris Saint-Germain)

- 29 ára þýskur varnarmaður

Shinji Kagawa hjá Borussia Dortmund (Orðaður við Sevilla og Marseille)

- 29 ára japanskur miðjumaður

Claudio Marchisio sem er samningslaus en var hjá Juventus (Orðaður við Porto og Benfica)

- 32 ára ítalskur miðjumaður

Lazar Markovic hjá Liverpool (Orðaður við PAOK og Anderlecht)

- 24 ára serbneskur miðjumaður

Ruben Loftus-Cheek hjá Chelsea (Orðaður við Mónakó og Schalke)

- 22 ára enskur miðjumaður

Mario Hermoso hjá Espanyol (Orðaður við Real Madrid)

- 23 ára spænskur varnarmaður



Liðin í ensku b-deildinni eru líka að leita sér að liðstyrk en ólíkt ensku úrvalsdeildinni þá lokar glugginn fyrir þau í dag.

West Brom þarf að finna sér mann eftir að hafa selt Nacer Chadli til Mónakó fyrir tíu milljónir punda.

Middlesbrough ætlar líka að styrkja sig. Knattspyrnustjórinn Tony Pulis segir liðið vera nálægt því að fá á láni þá George Saville frá Millwall og Jason Puncheon frá Crystal Palace.

Danski framherjinn Martin Braithwaite hefur einnig óskaði eftir því að fá að fara til Spánar.

Það má finna meira um þetta í samantekt BBC hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×