Innlent

Varað við óvenjuháum öldum í Reynisfjöru

Kjartan Kjartansson skrifar
Reynisfjara er gífurlega vinsæll áfangastaður ferðamanna sem hingað koma til lands.
Reynisfjara er gífurlega vinsæll áfangastaður ferðamanna sem hingað koma til lands. Vísir/Friðrik Þór
Mikill sjógangur gæti leitt til allt að sex til sjö metra hárra aldna í Reynisfjöru og fleiri fjörum sunnanlands á morgun. Veðurfræðingur segir spurningu um að loka fjörunum í öryggisskyni á meðan sjógangurinn er sem mestur.

Óvenjuháar öldur gætu skollið á Reynisfjöru, Kirkjufjöru og víðar í Mýrdal snemma á morgun. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur sem vinnur fyrir Vegagerðina, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að ölduhæð eins og sú sem spáð er á morgun skelli yfirleitt ekki á ströndum nema hvasst sé á stóru hafsvæði. Í samtali við Vísi segir Einar jafnframt að svo mikil ölduhæð sé óvenjuleg fyrir þennan árstíma.

„Við sjáum stundum á veturna úthafsöldu allt upp undir níu til tíu metra. Stundum nær hún landi en það er ekkert algengt. Það er helst í þessari suðvestanátt sem verður svona stórkostlegt brim við ströndina,“ segir hann.

Daníel Þorláksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að skil sem gengu yfir landið í nótt hafi ýft upp öldur með sunnanátt langt sunnan úr hafi. Strekkingsvindur á morgun muni viðhalda sjóganginum fram eftir degi. Draga á úr vindinum annað kvöld og úr ölduganginum í kjölfarið. Hann gæti þó verið áfram viðloðandi fram á sunnudag.

Í ljósi þess að enn er mikið af ferðafólki á ferð við ströndina veltir Einar fyrir sér hvort ástæða sé til þess að loka fjörunum fyrir umferð, að minnsta kosti fram yfir hádegi þar til mesti sjógangurinn er afstaðinn.

„Ég held að það sé full ástæða til þess að láta allavegana vita af af þessu,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×