Innlent

Helmingur bifreiðanna úr brunanum í eigu viðskiptavina

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá vettvangi við Öskju í morgun.
Frá vettvangi við Öskju í morgun. Vísir/Jóhann k. Jóhannsson
Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri bílaumboðsins Öskju, segir bifreiðarnar átta sem skemmdust í bruna í morgun ýmist hafa verið í eigu viðskiptavina eða umboðsins. Um er að ræða nýlegar bifreiðar. Upptökur úr öryggismyndavélum á svæðinu verða skoðaðar í dag.

Jón Trausti Ólafsson framkvæmdastjóri bílaumboðsins Öskju og formaður Bílgreinasambandsins.Vísir/Stöð 2
Eins og áður hefur komið fram eru að minnsta kosti átta bifreiðar mikið skemmdar eða ónýtar eftir brunann. Þá segir Jón Trausti að talið sé augljóst að um íkveikju hafi verið að ræða og er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu.

Sjá einnig: Átta bílar skemmdust í bruna við Öskju



Þá verður farið yfir upptökur úr öryggismyndavélum við bílaumboðið á næstu klukkutímum. Ekkert hefur þó enn komið í ljós um mannaferðir á vettvangi í morgun, að sögn Jóns Trausta. Hann segir viðbragðsaðila hafa brugðist fljótt við og náð að takmarka tjónið.

„En það er bara mikil mildi að ekki fór verr, að enginn slasaðist og að slökkviliðið var gríðarlega fljótt á staðinn. Okkar öryggisfyrirtæki var einnig mjög fljótt að átta sig á málinu þannig að sem betur fer var tjónið bara á þessum bílum og engu öðru.“

Bílarnir bæði í eigu umboðsins og viðskiptavina

Jón Trausti segir nýlegar bifreiðar hafa skemmst í brunanum, annars vegar af tegundinni Mercedes Benz og hins vegar Kia.

„Það voru þarna líklega fjórir í okkar eigu, sem eru bifreiðar sem við lánum viðskiptavinum. Svo eru þarna líklega fjórir bílar í eigu viðskiptavina sem hafa verið að sækja þjónustu hjá okkur á verkstæðinu. Við erum núna að upplýsa þá eigendur og láta þá vita hver staðan er.“

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um bílbruna við Öskju skömmu fyrir klukkan fimm í morgun. Eldurinn var slökktur um klukkustund síðar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×