Bíó og sjónvarp

Kona fer í stríð tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Halldóra Geirharðsdóttir sést hér í hlutverki sínu í kvikmyndinni.
Halldóra Geirharðsdóttir sést hér í hlutverki sínu í kvikmyndinni.
Kvikmyndin Kona fer í stríð hefur verið tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2018 fyrir Íslands hönd. Myndinni er leikstýrt af Benedikti Erlingssyni. Þá er Hlynur Pálmason einnig tilnefndur fyrir Vetrarbræður fyrir hönd Danmerkur

Þetta verður í 15. skipti sem verðlaunin verða afhent en úrslit verða tilkynnt þriðjudaginn 30. október í Norska óperu- og balletthúsinu í Ósló í tengslum við þing Norðurlandaráðs.

Verðlaunaféð nemur 350 þúsund dönskum krónum, tæpum sex milljónum íslenskra króna, og skiptist jafnt milli handritshöfundar, leikstjóra og framleiðanda.

Kvikmyndaverðlaunin eru veitt kvikmyndum í fullri lengd sem eiga rætur í norrænni menningu og hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunaverkið á að vera heilsteypt og einkennast af frumlegu listfengi en það er Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn hefur umsjón með kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs.

Íslendingar eiga þrjá fulltrúa í dómnefndinni; Börk Gunnarsson, Helgu Þórey Jónsdóttur og Hilmar Oddsson.

Eftirfarandi myndir eru tilnefndar til verðlaunanna. Lesa má nánari rökstuðning fyrir myndirnar á vef Norðurlandaráðs.



Ísland

Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson, leikstjóra, handritshöfund og framleiðanda, Ólaf Egil Egilsson, handritshöfund, og Marianne Slot og Carine Leblanc, framleiðendur.

Danmörk

Vetrarbræður eftir Hlyn Pálmason, leikstjóra og handritshöfund, og Per Damgaard Hansen, Julie Waltersdorph Hansen og Anton Mána Svansson, framleiðendur.

Noregur

Thelma eftir Joachim Trier, leikstjóra og handritshöfund, Eskil Vogt, handritshöfund, og Thomas Robsahm, framleiðanda.

Svíþjóð

Korparna eftir Jens Assur, leikstjóra, handritshöfund og framleiðanda, og Jan Marnell og Tom Persson, framleiðendur.

Finnland

Góðhjartaði drápsmaðurinn eftir Teemu Nikki, leikstjóra, handritshöfund og framleiðanda, og Jani Pösö, framleiðanda.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×